umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Virðulegi forseti. Núna eru komnar upp hugmyndir um að hægt sé að ná sátt í nefndarstörfum. Ég verð að viðurkenna að mér finnst það frekar ólíklegt svo ekki sé meira sagt með hliðsjón af því hvernig hegðun hv. meiri hluta hefur verið í gegnum ferlið. Það einkennist af því að segja eitt og síðan verður einhver svokallaður misskilningur, ýmist hjá hæstv. forsætisráðherra — eða okkur öllum hinum.
En hvernig sem á það er litið get ég einhvern veginn ekki í alvörunni treyst því þegar menn stinga upp á að einhver sáttavinna eigi sér stað í nefnd, að það sé rétt eða að ég skilji það rétt. Ég treysti sjálfum mér ekki til að skilja þessi samkomulög sem virðast eiga að eiga sér stað hérna. Það virðist alltaf vera einhver hræðilegur misskilningur á ferð og eftir á er alltaf talað eins og um allt annað hafi verið að ræða.
Kannski er ég ekki betri í íslensku en þetta en ég á mjög bágt með að trúa þeim skilningi að í nefndarstörfum leynist (Forseti hringir.) einhver sátt. Ég efast mjög stórlega um það svo ekki sé meira sagt.