143. löggjafarþing — 72. fundur,  11. mars 2014.

störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég sé ástæðu til að vekja athygli á og þakka fyrir þau lofsamlegu orð sem hæstv. forsætisráðherra viðhafði hér í gær í fyrirspurnatíma um efnahagsbatann á Íslandi undanfarin missiri, eins og hæstv. ráðherra orðaði það réttilega. Það var allt rétt hjá hæstv. forsætisráðherra en kom kannski úr óvæntri átt miðað við málflutning hans bæði fyrir og eftir kosningar.

Hagstofan hefur nú birt áætlanir um hagvöxt á árinu 2013 upp á 3,3% og endurmetið til lítillegrar hækkunar hagvöxt á árinu 2012 þannig að að meðaltali hefur hagvöxtur á Íslandi verið 2,5% þrjú síðastliðin ár, 2011, 2012 og 2013. Það er sannarlega ekki svo slakur árangur í dauflegum samanburði við alþjóðaumhverfið og í ljósi erfiðleikanna í Evrópu.

Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson talaði hér eins og stundum áður um þörfina á aga í ríkisfjármálum. Mikið tek ég undir það.

Þá er líka hægt að gleðjast yfir þeim tölum sem voru einmitt að koma, komu í þessari viku og í morgun, frá bæði fjármálaráðuneytinu og Hagstofunni sem staðfesta verulegan afkomubata hins opinbera á síðasta ári. Nýjustu upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á árinu 2013 eru þær í sambandi við neikvætt fé frá rekstri að þar hafi staðan batnað um rúma 20 milljarða milli áranna 2012 og 2013 og munar um minna. Afkoma á rekstrargrunni liggur ekki fyrir en þó virðist stefna í a.m.k. 4 milljarða minni halla en fjáraukalög gerðu ráð fyrir fyrir tveimur mánuðum síðan eða svo. Hagstofan birti í morgun gögn um tekjuafkomu hins opinbera í heild eftir að niðurstaðan á fjórða ársfjórðungi lá fyrir og þar er sömuleiðis staðfestur verulegur bati á afkomu hins opinbera í heild. Allt eru þetta ánægjulegar fréttir og staðfesta að efnahagsbatinn á Íslandi (Forseti hringir.) var á góðu skriði og í raun mun betra (Forseti hringir.) en menn vildu viðurkenna bæði fyrir og eftir kosningar sl. vor.