umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Herra forseti. Ég tel að það geti verið mikilvæg pólitísk skuldbinding af hálfu stjórnmálaflokka, ef eitthvað er að marka yfirlýsingar stjórnmálaflokka yfirleitt, sem ég vil gjarnan trúa að sé, ef fram fer þjóðaratkvæðagreiðsla og stjórnmálaflokkar segja: Við ætlum að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Svo geta aðrir stjórnmálaflokkar komið og sagt: Nei, við ætlum ekki að virða niðurstöðuna. Við ætlum bara að greiða atkvæði um þetta mál eins og stefnuskrá okkar segir til um alveg óháð því hver niðurstaðan verður í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Nú, þá liggur það fyrir fyrir kosningar. Kjósendur geta þá tekið afstöðu til þess hvort þeir vilja kjósa þá flokka eða ekki. Fyrir mína parta er ekkert vandamál að segja við þjóðina: Já, við ætlum að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Ég mundi gera það.
Varðandi seinni spurningu hv. þingmanns, hvort einhver munur sé á því að draga umsókn til baka eða gera hlé, þá tel ég að grundvallarmunur sé á því. Það er munur á því hvað varðar stöðu okkar gagnvart Evrópusambandinu og gagnvart umsóknarferlinu (Forseti hringir.) sem slíku. Það segir sig sjálft að sé umsóknin (Forseti hringir.) dregin til baka er ríkið ekki lengur umsóknarríki en það er það ef málið er sett á ís, eins og var tilfellið með Möltu á sínum tíma.