143. löggjafarþing — 72. fundur,  11. mars 2014.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.

340. mál
[18:11]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Þessi skýrsla væri í sjálfu sér ágætt innlegg í umræðuna ef við værum núna að tala um hvort við ættum að sækja um inngöngu í Evrópusambandið eða ekki, værum á þeim tímapunkti, en við erum það ekki.

Þar sem við deilum að mörgu leyti skoðunum í þessu máli vil ég spyrja hv. þingmann hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að umræðan og meðferðin á þessu máli, eins og ríkisstjórnin ætlar að fara með það núna, að knýja áfram að slit verði, ýti því fólki sem er óákveðið nær því að vilja ganga í Evrópusambandið og eyðileggi í raun fyrir okkur sem viljum frekar vera utan Evrópusambandsins til lengri tíma litið. Telur hv. þingmaður tillögu okkar vinstri grænna ekki skynsamlega til að nálgast málið með ákveðinni yfirvegun og mæta ólíkum sjónarmiðum svo að hægt sé að ná niðurstöðu í þetta mál hjá þjóðinni á þessu kjörtímabili?