umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Frú forseti. Mér skilst að mér hlotnist sá sérstaki heiður að vera síðasti ræðumaðurinn hér í kvöld og ég skal reyna að fara vel með það vandasama hlutverk. — Ég er nú varla byrjaður, hv. þingmaður. Var það þetta sem stuðaði hv. þingmann svona svakalega að hann ákvað að biðja um andsvar?
Ég skil það vel að hv. þm. Óttari Proppé þyki naumt að hafa bara 10 mínútur til að ræða þetta stóra mál og í raun og veru þrjár tillögur til þingsályktunar sem undir eru og hefði gjarnan notað til þess þrjá klukkutíma ef ég heyrði rétt. Sá er reyndar munur á mér og hv. þingmanni að ég hef átt þess kost alloft hér á þessum vettvangi að tala í þrjá klukkutíma og hef stundum gert það ef þess hefur þurft með. Ég tek vissulega undir það að það er miður að hafa ekki aðeins rýmri tíma. Það er eiginlega það undarlega að menn skyldu ekki reyna að ná a.m.k. utan um það að búa til rýmri ræðutíma í einni samfelldri umræðu um þessi þrjú þingmál.
Ég ætla aðallega að halda mig við tillögu hæstv. utanríkisráðherra. Ég tek reyndar eftir því, m.a. í kvöldfréttum áðan þar sem var viðtal við hæstv. ráðherra, að kominn er eitthvað mildari tónn í hæstv. ráðherra en var hér fyrst um sinn eftir að hann ræddi skýrslu sína og kom fram með þessa tillögu. Batnandi mönnum er best að lifa en ætli það sé ekki bara raunsæi sem hafi einhvers staðar tekið völdin í herbúðum hæstv. utanríkisráðherra, hann sjái að sér og sé að reyna að friðmælast aðeins eftir framgöngu sem satt best að segja var hæstv. ráðherra ekki sérstaklega til vegsauka. Má ég þá minna á, þótt það sé svo sem vatn undir brúna eins og nú er farið að segja á íslensku, greinargerðina eins og hún var með tillögunni þegar hún kom fyrst fram. Auðvitað er sá blettur áfram á ferli hæstv. ráðherra að hafa látið sér detta í hug að bjóða þingheimi upp á þvílíkt og annað eins.
Eins var það, og er sjálfsagt önnur ástæða fyrir því að ráðherra dregur nú sem óðast í land, að málatilbúnaðurinn var einstaklega óhönduglegur og tímasetning fruntaleg af hálfu hæstv. ríkisstjórnar þegar tillögunni var hent inn í miðja umræðu um skýrsluna sem átti að vera grundvallargagn í umræðum. Greinargerðin hefur vissulega verið löguð lítillega og skjalið prentað upp. Þó finnst mér hún enn þá meingölluð Það er ýmislegt í henni sem á þangað í sjálfu sér ekkert erindi og upplýsir málið ekki nokkurn skapaðan hlut. Það er eins og menn séu í heimastílum að reyna að rétta hlut sinn pólitískt eftir á. Hins vegar vantar það sem mér finnst vera allt of lítið rætt í þessari umræðu, það er greining á stöðu Íslands og mat á því hvar við stöndum með þessi mál og hvaða áhrif mismunandi skref okkar hafa á stöðu landsins, bæði inn á við og út á við.
Loforðin sem forustumenn stjórnarflokkanna, fjölmargir ráðherrar í núverandi hæstv. ríkisstjórn, gáfu fyrir kosningar eru svo kapítuli út af fyrir sig. Það hlýtur að vera svakalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa látið Framsóknarflokkinn teyma sig til þess að flytja þessa tillögu, henda henni hingað inn í miðja umræðu um skýrsluna, ómerkja þar með í raun og veru það sem búið var að segja um mikilvægi þess að fá skýrsluna og ræða hana vandlega og svo kemur í ljós þegar fjölmiðlar fara að grafast fyrir um það og rifja upp kosningabaráttuna að allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins á einum eða öðrum tímapunkti og sumir oftar en einu sinni lýstu sig eindregna stuðningsmenn þess að næstu skref yrðu ákveðin af þjóðinni. Það getur varla orðið nöturlegra fyrir stjórnarflokk. En hvað um það. Ég vil ekki eyða tíma mínum í það enda hafa margir aðrir gert það.
Það sem mér finnst skipta máli er að rætt sé svolítið um þessa spurningu: Eru einhver færi í stöðunni núna til að koma málinu upp úr hjólförunum og takast á við það með hliðsjón af stærð þess og mikilvægi fyrir land og þjóð? Auðvitað er okkur öllum ljóst sem eitthvað höfum fylgst með og tekið þátt í þjóðmálaumræðu undanfarin 20 ár a.m.k. og jafnvel þó lengur væri að þessi vegamót eru í sjálfu sér þarna einhvers staðar fyrir framan Ísland, það er alveg ljóst. Og fyrr eða síðar, með einum eða öðrum hætti eins og Bessastaðabóndi mundi orða það, þarf að fá niðurstöðu í það mál. Það mun fyrr eða síðar gerast einhvern veginn og við víkjum þeim veruleika ekki frá okkur. Hvað er þá best til ráða við þær aðstæður, í stórmáli sem er umdeilt, þar sem skiptar skoðanir eru meðal þjóðarinnar og innan flokka, milli flokka og í hagsmunasamtökum og félagasamtökum í landinu?
Veltum aðeins fyrir okkur, hvernig er líklegast að þjóðin uni niðurstöðunni sem best? Er það með því að hún sé knúin fram pólitískt, með handafli, í ljósi tímabundins meiri hluta um eina eða aðra niðurstöðu hér á þingi? Er það líklegt? Nei. Er það líklegt til að setja málið niður? Nei. Það mun hvorugt gerast við slíkt þannig að tillagan er þegar af þeim ástæðum að mínu mati meingölluð. Ég vísa ábyrgðinni á henni hvað varðar loforð stjórnarflokkanna til þeirra sjálfra. Þeir skulu kljást við það. Ég vil ræða hvernig Ísland stendur að vígi í þessum efnum, við sem þjóð og hvað er gæfulegast að gera fyrir okkur.
Ég sem andstæðingur þess að Ísland gangi í Evrópusambandið gæti við venjulegar, hlutlausar óbundnar aðstæður að sjálfsögðu hugsað mér að greiða atkvæði með því að hætta viðræðum um það og fara bara í burtu frá því. Það væri efnislega sú niðurstaða sem félli að mínum skoðunum um að það sé að breyttu breytanda og að öllu samanlögðu væntanlega ekki hagstætt fyrir Ísland að gerast aðili að því. Það er algerlega óbreytt skoðun mín, hefur lengi verið og þarf sennilega heilmikið til að hún breytist.
En þá kemur að því, hverjar aðstæður eru uppi í þessum málum? Er líklegt að slík niðurstaða hér og nú, fengin fram með einfaldri ákvörðun Alþingis, gegn loforðum og hafandi að engu loforð sem eiginlega allir flokkar meira og minna höfðu uppi, missterkt, um að þjóðin ætti að ráða sér sjálf, setji málið niður? Nei. Aldeilis ekki. Ef ég tryði því að það væri í boði að taka innan veggja Alþingis endanlega ákvörðun sem þýddi að málið væri afgreitt í 20 ár og það væri lýðræðislegt að gera það svo, væri ég auðvitað sáttur við það út frá minni afstöðu. En þannig er það ekki.
Í öðru lagi er það veruleiki og staðreynd, hvað sem menn segja um upphaf þess, að við erum búin að eyða tíma og kröftum í það að ræða við Evrópusambandið og erum langt komin með að láta á það reyna hvers konar samningsniðurstöðu við gætum fengið. Já, það hefur gengið hægar. Já, það voru eftir stórir erfiðir kaflar en engu að síður var farið að sjá fyrir endann á því að við gætum knúið á um niðurstöðu hvað varðar m.a. stór og afdrifarík hagsmunamál eins og landbúnað og sjávarútveg.
Í þriðja lagi er það pólitískur veruleiki að þjóðin upplifir það svo að verið sé að gefa henni langt nef ofan í allt sem sagt var og öllu því sem heitið var fyrir kosningar ef þetta yrði sisvona og allt í einu klárað núna. Meira að segja stjórnarsáttmálinn sem er birtur eftir kosningar gefur frekar en hitt fyrirheit um að þjóðin verði kölluð að borðinu. Það er ekki minnst einu orði á slit á viðræðum í þeim texta, hvergi. Þvert á móti er talað um að úttektin verði gerð og lögð fyrir þing og þjóð til umræðu og ekki haldið lengra í aðildarviðræðunum nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Það stendur ekki að það eigi að slíta viðræðunum. Nei, aldeilis ekki.
Í fjórða lagi er svo það sem hefur áhrif á afstöðu mína til þessa máls að við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, eftir miklar umræður á okkar vettvangi, verandi þó flokkur sem er tiltölulega mjög samstæður, alla vega þingflokkur og forusta flokksins, um að við erum ekki stuðningsmenn aðildar að Evrópusambandinu, höfum fyrir löngu komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé stórmál af því tagi sem þjóðin ein geti í raun og veru leitt til lykta og eigi að leiða til lykta, það sé lýðræðislegast og það sé eðlilegast. Um það ályktuðum við svo snemma sem á landsfundi okkar í byrjun árs 2009 og hefur verið okkar megináhersla í þessum efnum síðan. Það er hægt að fara nokkrar mismunandi leiðir að því marki að láta þjóðina taka hina endanlegu ákvörðun eins og kunnugt er en ég held að allar aðstæður eins og þær hafa núna teiknast upp og pólitískur veruleiki þessa máls sé sá að það sé algert óráð að taka úr þessu afgerandi ákvörðun til eða frá í eina átt eða aðra nema kalla þjóðina að því borði. Það er eina leiðin til að fá niðurstöðu sem einhver framtíðarfriður getur orðið um.