umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Virðulegur forseti. Maður fær í rauninni mjög stuttan tíma til að ræða svona umfangsmikið mál. Þetta er þingsályktunartillaga og ég er þegar búinn að flytja fyrri ræðu mína, sem var í tíu mínútur, og nú fæ ég fimm mínútur til að tala um þetta umsvifamikla mál.
Það sem vekur athygli mína og maður þarf að minna sig á í þessari umræðu er í raun og veru hversu furðuleg hún er. Við erum ekki á þessum tímapunkti að ræða hvort við eigum að ganga í ESB eða ekki. Við erum ekki komin svo langt. Við erum að ræða hvort við eigum að ræða það hvort við eigum að fara inn í ESB og hvort við eigum að spyrja þjóðina hvort hún vilji komast að niðurstöðu um það hvort við viljum fara inn í ESB. Við erum ekki komin lengra en þetta. Ég held að þetta sé einsdæmi.
Við köllum okkur þroskað lýðræðisríki. 28 lýðræðisríki í Evrópu hafa farið í gegnum þetta ferli, farið í samningaviðræður, lokið samningaviðræðum, náð ásættanlegum samningum sem báðir viðsemjendur kunna við og geta sætt sig við og farið síðan í þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn. Svona samningur hefur verið felldur. Það gerðist í Noregi. Yfirleitt hefur hann verið samþykktur. Það hefur oft gerst, eins og í Eystrasaltslöndunum, að samningurinn hafi breytt viðhorfi til ESB-aðildar vegna þess að samningurinn er svo rosalega stór og mikilvæg breyta í þessari ákvarðanatöku, það hlýtur að vera augljóst. En af hverju getum við þetta ekki, þetta aldagamla lýðræðissamfélag? Okkur hefur verið um megn að fara í gegnum þetta ferli. Við erum fyrst ríkja í Evrópu að spá í það að slíta viðræðum. Það yrði einsdæmi.
Ég rakti það í fyrri ræðu minni hversu margar ástæður hafa verið gefnar í þessu ferli fyrir því að slíta viðræðum og hversu illa þær hafa staðist. Meira að segja í undanfarinni viku voru nefndar nýjar ástæður sem eru ekki einu sinni í greinargerðinni með tillögu utanríkisráðherra. Það er ástæðan um að ESB vilji fá svar, vilji annars slíta viðræðum. Það er ekki einu sinni í greinargerðinni. Það eru alltaf að koma nýjar og nýjar ástæður sem eru síðan hraktar. Af hverju er þessi ákafi? Af hverju getum við ekki klárað þessar viðræður?
Nú ætla ég að reyna að setja mig í spor þeirra sem eru andsnúnir aðild að ESB. Ég sé alveg rök fyrir því að vera andsnúinn aðild að ESB, en ég get ekki skilið ákafann. Af hverju að hætta við umræðurnar? Af hverju á ekki að leiða málið til lykta? Af hverju á ekki að bera þá virðingu fyrir lýðræðinu, fyrir öðrum og sjónarmiðum annarra að fá að sjá allar staðreyndir? Það eina sem getur útskýrt ákefðina fyrir því að slíta viðræðum í mínum huga eru hagsmunir, peningalegir hagsmunir. Það er það sem ég held að við séum að glíma við hérna.
Það er einfaldlega þannig að það eru aðilar í íslensku samfélagi sem njóta góðs af ástandinu eins og það er. Aðilum sem stunda útflutning finnst það auðsjáanlega gott að fá tekjur í evrum og borga laun í krónum. Það er mjög gott, það skapar mikinn hagnað og nú vilja þeir jafnvel lækka gengi krónunnar enn meira. Aðilar sem búa við ofvernd í matvælaiðnaði, búa við samkeppnisleysi, fullkomið samkeppnisleysi, vilja hafa það þannig áfram.
Mín kenning er sú að þessir aðilar drífi þessa ákefð áfram. Um það snýst umræðan núna. Við skulum átta okkur á því að ef þessir aðila væru ekki á bak við þessa umræðu þá mundum við bara klára þetta mál, þá mundum við einfaldlega ganga í málið eins og þroskað lýðræðissamfélag gerir og 28 ríki hafa gert, klára samningana, sjá hvað er í þeim. Er hag okkar betur borgið? Fáum við sérlausn í sjávarútvegi eins og við viljum? Sjáum við í samningi möguleika fyrir komandi kynslóðir að rækta hæfileika sína? Sjáum við í samningnum möguleika fyrir okkur að leysa vandamál í íslensku efnahagslífi tengda gjaldmiðlum? Svör við þessu sjáum við ef við klárum samningana. Ástæðan fyrir því að við klárum ekki samningana og viljum slíta viðræðum, ef einhverjir vilja slíta þeim, eru peningalegir hagsmunir. Það er gömul saga og ný á Íslandi.