143. löggjafarþing — 75. fundur,  13. mars 2014.

lengd þingfundar.

[18:45]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Reisnin yfir tillögu hæstv. forseta er ekki mikil. Hvers vegna? Það eru tvær ástæður fyrir því. Við höfum í tvo daga óskað eftir því að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, forustumenn ríkisstjórnarinnar kæmu og a.m.k. sætu hér, þó ekki væri nema undir einni eða tveim ræðum, það er eina sem við höfum beðið um. Þeir þurfa ekki að sitja hér allan daginn, bara kíkt aðeins við, tekið sér kannski kaffibolla í hliðarsal og hlustað á okkur og komið í eitt, tvö andsvör. Þeir hafa ekki einu sinni gert það.

Svo koma þeir hins vegar núna með engum fyrirvara, þá geta þeir hrúgast inn í þingsal til að greiða atkvæði, til að sýna vald sitt, um að við hin fáum að tala hér hvert við annað áfram án þess að forusta ríkisstjórnarflokkanna taki þátt í því af neinu viti. Þá eru menn tilbúnir að koma í þingsal til að sýna vald sitt gagnvart okkur hinum sem höfum verið hér í málefnalegri, efnislegri umræðu.

Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Ég er ósátt við þetta og ég sagði áðan að ég er líka ósátt við það hvernig þetta ber að. (Forseti hringir.) Heiðarlegra og hreinlegra hefði verið (Forseti hringir.) að boða til þessarar atkvæðagreiðslu í morgun þegar fundur var settur. (Forseti hringir.) Okkur þingmönnum og fjölskyldum okkar er sýnd mikil óvirðing með því að gera þetta hér þegar nótt er að bresta á.