143. löggjafarþing — 75. fundur,  13. mars 2014.

lengd þingfundar.

[18:56]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við höfum átt hér, eins og hefur komið fram, málefnalega umræðu undanfarna þrjá daga. Eftir að hafa fylgst með henni er mann farið að gruna að Sjálfstæðisflokkurinn skammist sín svo mikið fyrir þá þingsályktunartillögu sem hæstv. utanríkisráðherra lagði fram og þau svik sem felast í henni á þeirra eigin loforðum að það valdi því að þeir hafi áttað sig á því að fæst orð hafa minnsta ábyrgð og þeir ætli því ekki að taka þátt í umræðunni. Ég vil þó einu sinni enn hvetja þá til að koma hingað.

Það hefur komið fram og ég þekki það sem fyrrverandi ráðherra að ráðherrar hafa fengið að koma á mælendaskrá og flytja ræður þegar þeir óska eftir því. Ég skora á þá, því að nú eru þeir allir komnir í hús og fá eflaust mat í mötuneytinu, að koma og flytja ræður svo að við þurfum ekki að eiga orðastað við þá hér eftir yfirlýsingar þeirra einhvers staðar annars staðar úti í bæ. (VigH: Þá styðurðu tillöguna.) — Ég styð ekki þessa tillögu nema ég geri mér grein fyrir því að þeir ætli að vera hér, það er háð því. Ég bíð eftir þeirri yfirlýsingu, annars er ég á móti þessari tillögu.

Ég hef líka kvartað yfir því að hæstv. forsætisráðherra hafi kallað (Forseti hringir.) eftir rökræðu. Ég auglýsi (Forseti hringir.) eftir því: Hefur einhver einhvern tíma heyrt (Forseti hringir.) hæstv. forsætisráðherra rökræða (Forseti hringir.) mál í þinginu? (Gripið fram í: Nei.) Ég hef aldrei (Forseti hringir.) heyrt það. (Gripið fram í.)