143. löggjafarþing — 75. fundur,  13. mars 2014.

lengd þingfundar.

[19:05]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Mér er skapi næst að byrja á því að gera athugasemd við fundarstjórn forseta því að ég bað hér um orðið um atkvæðagreiðsluna. En tilefnið er ekki farið.

Það eru vonbrigði að þessi staða skuli vera komin upp. Það eru vonbrigði að ríkisstjórnin og hæstv. forseti skuli kjósa að slíta friðinn. Ríkisstjórnin er í þeirri stöðu að hún verður að hlusta á 82% þjóðarinnar. Hún verður að hlusta á 50 þúsund undirskriftir. Hún verður að hlusta á hjartslátt þjóðarinnar, ég tala nú ekki um sín eigin orð. Ég óska eftir því að hæstv. ráðherrar geri það fyrir þingræðið að setja sig á mælendaskrá. Það er full ástæða til að þeir geri það og taki þátt í þessari umræðu um þetta stóra mál.

Niðurstaðan hlýtur að fela það í sér að þjóðin komi að borðinu. Hún á það skilið. (Forseti hringir.) Það er eina leiðin til að lenda þessu máli.