umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir að gera það sem hann boðaði, koma í salinn og færa þessa umræðu upp á hærra plan. Það tókst aldeilis með þessu andsvari. Það að leita skjóls í embættisfærslum Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi þingmanns, og segja svo að þess vegna sé maður sjálfur viss um sinn eigin pólitíska ómöguleika í því að vera faglegur — ja, heyr á endemi. Þetta þykja mér ekki heldur rök. Jón Bjarnason gerði margt mjög ágætt og mér finnst óþarfi að gera lítið úr honum með því að segja að maður sæki sér rök í einhvern pólitískan ómöguleika út af því hvernig hann hagaði sér í fyrrverandi ríkisstjórn. (HHj: Er þetta sama …? ) Ég óska eftir því að hæstv. ráðherra komi hingað með efnisleg rök fyrir því að hann telji sig þurfa að svíkja orð sem hann sagði í viðtali við Fréttastofu Ríkisútvarpsins fyrir kosningar, með leyfi forseta: (Gripið fram í.)
„Ég tel að það sé vel raunhæft að gera þetta á fyrri hluta kjörtímabilsins næsta. Jafnvel samhliða sveitarstjórnarkosningunum. Við verðum að sjá til, en Sjálfstæðisflokkurinn styður að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál.“
Virðulegi forseti. Þetta sagði hæstv. ráðherra. Það er ekkert í hans orðum og ekkert í greinargerðinni með þingsályktunartillögunni sem svarar þeirri spurningu hvers vegna formaður Sjálfstæðisflokksins telur svo mikilvægt að slíta þessum viðræðum núna að menn eru farnir að keyra inn í kvöldfundi, verða viðskila við atvinnulífið og verða viðskila við þjóðina sem gerir kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu (Forseti hringir.) til að ná sínu fram. Ég held að við þurfum einhver dýpri svör en hinn pólitíska ómöguleika vegna þess að svarið við þessari spurningu hlýtur að liggja dýpra en það.