umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Frú forseti. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn er samstiga atvinnulífinu í landinu heitir það á tungumáli Samfylkingarinnar sérhagsmunagæsla. En þegar atvinnulífið lendir upp á kant við stefnu Sjálfstæðisflokksins eða ríkisstjórnar sem hann fer fyrir heitir það að Sjálfstæðisflokkurinn hafi orðið viðskila við atvinnulífið. Þetta er alveg hlægileg hringröksemdafærsla hjá Samfylkingunni. (Gripið fram í: Það er óþarfi …)
Að öðru leyti vil ég bara vekja athygli á því að Samfylkingin reyndi á eigin skinni hvað það þýðir að standa frammi fyrir því sem er pólitískt óraunhæft. Hún reyndi það á eigin skinni í fjögur ár og það sveið sárt að geta ekki staðið við loforðið um að skila aðildarsamningi á síðasta kjörtímabili og láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um hann. Það sveið sárt og það var stanslaust uppnám á stjórnarheimilinu allt það kjörtímabil. Öll þjóðin fylgdist með. Það þurfti að víkja ráðherrum úr sínum stólum. (Gripið fram í: Af hverju ert þú …?) Þetta muna menn. (Gripið fram í: En af hverju …?) Þess vegna veit það fólk sem hér kemur inn … (Gripið fram í.) Mætti ég biðja um að fá tækifæri frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar til að ljúka ræðu minni? (Forseti hringir.)
Þótt þetta fólk komi hér og hafi í flimtingum mikilvægi þess að það sé pólitísk forusta fyrir því að ljúka aðildarviðræðum veit það betur. (Gripið fram í.)
(Forseti (SilG): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutíma.)