umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Frú forseti. Það er nú mikið lagt upp úr því að fram fari hagsmunamat til að geta tekið ákvörðun í þessu máli, en ekkert hagsmunamat fór fram árið 2009 þegar umsóknin var lögð fram. Þó vil ég halda því fram að þá sé tekin mun stærri ákvörðun, að ganga í Evrópusambandið frekar en að viðhalda óbreyttu ástandi. Tillagan sem nú liggur fyrir þinginu gengur í raun og veru út á það að viðhalda óbreyttu ástandi í utanríkismálum, þ.e. byggja áfram á samningnum um EES eins og við höfum gert undanfarin ár.
En að sjálfsögðu byggir tillagan á hagsmunamati. Það hagsmunamat hefur farið fram ár eftir ár í mörg ár, m.a. allan þann tíma sem við höfum framfylgt EES-samningnum og það hagsmunamat hefur birst í ýmsum skýrslum sem kynntar hafa verið fyrir þinginu. Svo hafa flokkarnir hver fyrir sig gert sitt eigið hagsmunamat og komist að niðurstöðu um þessi mál. Þess vegna er ekki hægt að halda því fram að umræðan hér byggist ekki á neins konar hagsmunamati. Auðvitað hefur það hagsmunamat farið fram alveg eins og Samfylkingin byggir afstöðu sína í málinu (Forseti hringir.) á eigin hagsmunamati.