143. löggjafarþing — 75. fundur,  13. mars 2014.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.

340. mál
[22:31]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er svolítið hlægilegt að hæstv. ráðherra Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, sé þakkað sérstaklega fyrir að koma í ræðustól. Ég tel að hann hefði átt að gera það löngu fyrr. Það er ýmislegt merkilegt sem kom fram í ræðu ráðherrans þó að mikinn herslumun vanti upp á til að hægt sé að treysta því almennilega sem hann sagði. Ég á næstu ræðu hér, ég á fimm mínútur, og það að formaður annars ríkisstjórnarflokksins hafi komið og haldið ræðu breytir nokkru um það sem ég hefði kannski viljað sagt hafa. Það er svoleiðis. Þó að ég sé fljót að hugsa og svoleiðis vil ég á þeim forsendum að hægt sé að bregðast við innleggi hans í þessari mikilvægu umræðu (Forseti hringir.) biðja hæstv. forseta að fresta fundi til morguns svo að hægt sé að sofa á orðum annars formanns ríkisstjórnarflokkanna (Forseti hringir.) og bregðast við þeim.