umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Herra forseti. Það er svo margt sem hefur borið á góma um fundarstjórn sem er óútkljáð. Við eigum eftir að fá hæstvirta ráðherra hingað til þess að skýra mál sitt. Það er mjög erfitt fyrir okkur sem erum að fara í seinni ræðu að vera ekki búin að heyra sjónarmið ráðherranna áður, sem væri góð ástæða til að slíta þessum fundi og halda umræðunni áfram síðar.
Síðan er það hitt, það er ekki hægt að ljúka þessari umræðu og senda málið á floti inn í nefndina af því að boðið hafi verið upp á mjög furðulega og óskiljanlega valkosti í meðförum nefndarinnar.
Ég endurtek að ég mælist til þess að forseti haldi fund með þingflokksformönnum eða (Forseti hringir.) formönnum flokkanna og að jafnvel (Forseti hringir.) verði undirritað samkomulag (Forseti hringir.) um meðhöndlun málsins. (Forseti hringir.) Hæstv. ríkisstjórn er ekki treystandi, herra forseti.