umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
Hæstv. forseti. Ég man svo sem ekki eftir miklum yfirlýsingum hjá þingmönnum í Norðvesturkjördæmi, við fórum ekki saman um kjördæmið. Umræðan þar var fyrst og fremst um skuldavandann og úrlausnir hvað hann varðar.
Aftur á móti var mjög forvitnilegt að fylgjast með því að á fjórðungsþingi á Vestfjörðum, sem haldið var í Trékyllisvík, var borin upp tillaga um að halda aðildarviðræðum áfram og hún var samþykkt. Hún var reyndar borin upp tvisvar, annars vegar með beinum atkvæðum og hins vegar með vegnu atkvæðamagni eftir stærð sveitarfélaga, og í bæði skiptin var hún samþykkt.
Það kom líka á óvart, þegar Vífill Karlsson, hjá Sambandi sveitarfélaga á Vesturlandi, gerði athugun á því á meðal fyrirtækja á Vesturlandi hvaða afstöðu þau hefðu varðandi Evrópusambandið, að mikill meiri hluti vildi skoða Evrópusambandið og fara þar inn. Ég held því að menn séu fullkomlega að vanmeta stöðuna. Margir bændur í þessu kjördæmi vilja líka láta skoða hvað innganga þýðir fyrir hin fámennari svæði þar sem byggðastefna hefur verið slök undanfarin ár, þar sem mikil fólksfækkun hefur orðið — hvaða kostir eru við að ganga í Evrópusambandið og fá styrki sem hugsanlega fylgja því til að reyna að efla búsetu á þessum svæðum.
Ég ætla því ekki að gefa neina eina niðurstöðu en tek fram að umræðan á þessu svæði var fyrst og fremst um skuldamálin. Margir yfirgáfu til dæmis Samfylkinguna vegna þess að þeir treystu á þau loforð sem gefin voru í því sambandi. Framsóknarflokkurinn fékk enda gríðarlega góða kosningu í Norðvesturkjördæmi. Ég ætla að vona að ekki verði farið með það loforð eins og kosningaloforðin um Evrópusambandsaðildina, að ekkert verði úr því. Það mál hefur dregist mjög og við höfum því nógan tíma til að ræða þetta hér. Það er ekkert komið fram af þeim tillögum nema þingsályktunartillaga í tíu atriðum og nú eru menn farnir að kalla á efndir hvað það varðar. Það er ekkert af þeim komið(Forseti hringir.) hingað inn sem þingmál (Forseti hringir.) enn þannig að það rekur ekki á eftir okkur hér.