um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Það eru 21 mál á dagskrá hér í dag. Það er dapurlegt að minni hlutinn skuli halda áfram í þeim gír sem hann var í síðustu viku. En látum það nú vera.
Hér kemur þingflokksformaður Samfylkingarinnar upp og endurtekur orð formanns Samfylkingarinnar um að eitthvert klúður hafi verið í makrílsamningnum og vísar þar til hádegisfrétta. Ég vil spyrja þessa ágætu formenn: Hefðu þeir viljað að við gengjum að samningum eins og ESB er með, sem hefur misfarið með 30% af stofnum sínum; 80% ofveiði; brottkast. Er Samfylkingin kannski á nýrri vegferð, þvert á ályktun, að vísu frá 2013, þar sem segir að flokkur jafnaðarmanna berjist fyrir sjálfbærri nýtingu auðlindanna? Er flokkurinn að skipta um stefnu að þessu leyti og telur flokkurinn, formaðurinn og þingflokksformaðurinn, að nú sé tækifæri til að segja að það sé klúður að standa á rétti sínum um sjálfbæra nýtingu auðlinda. (HHj: Við hefðum bara ekki staðið upp frá samningaborðinu.)