gjaldskrárlækkanir o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um gjaldskrárlækkanir o.fl. Gjaldskrár ríkisins, þar með talin krónutölugjöld og nefskattar, eru mikilvægur hluti af tekjuáætlun fjárlaga ár hvert. Þessir skattar hækka ekki sjálfvirkt í takt við verðlag heldur þarf að breyta lögum eigi þeir að fá verðlagsuppfærslu. Það hefur að jafnaði verið svo að þessir skattar hafa fylgt verðlagi. Komið hefur fyrir að þeir hafi hækkað umfram verðlagsbreytingar en það hefur líka gerst að þessir skattar fylgja ekki verðlagi. Þannig var til dæmis um marga þessara skatta á árinu 2013.
Ein af forsendum fjárlaga fyrir árið 2014 var sú að gjaldskrár eldsneytisgjalda og áfengis- og tóbaksgjalds mundu hækka um 3% í upphafi árs í takt við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins. Þau áform voru samþykkt á Alþingi með lögum nr. 140/2013, um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2014, og er sú hækkun þegar komin til framkvæmda.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2013, sem kynnt var Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandi Íslands í tengslum við gerð kjarasamninga, segir meðal annars, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórnin lýsir því yfir að hún muni við samþykkt kjarasamninga endurskoða til lækkunar vissar breytingar á gjöldum sem samþykktar hafa verið í tengslum við afgreiðslu fjárlaga 2014 til að stuðla að því að verðlagsáhrif, sem af þeim leiði, verði minni en ella og innan verðbólgumarkmiða Seðlabanka Íslands …“ — sem er 2,5%.
Þó að samþykkt kjarasamninga hafi ekki gengið eftir í fyrstu eins og vonir stóðu til þar sem rétt rúmlega helmingur félagsmanna samþykkti en tæplega helmingur samþykkti ekki í fyrstu tilraun — það hefur þó færst til betri vegar í millitíðinni — tók ríkisstjórnin engu að síður þá ákvörðun að beita sér fyrir lækkun á gjaldskrám eldsneytisgjalda og áfengis- og tóbaksgjalds í samræmi við þá yfirlýsingu sem ég hef rakið og raunar umfram verðbólgumarkmið upp á 2,5%, við ætluðum sem sagt að lækka gjöldin niður fyrir 2,5%, niður í 2% samkvæmt frumvarpinu.
Ríkisstjórnin tók þessa ákvörðun á sínum tíma eftir fyrri atkvæðagreiðsluna og taldi þetta mikilvægt innlegg í framhald málsins. Ég tel að það hafi skilað sínu, frumvarpið hefur legið hér frammi í þinginu og þessi áform voru kynnt fyrir síðari atkvæðagreiðslurnar. Ég vonast að minnsta kosti til þess að þetta hafi að einhverju leyti haft jákvæð áhrif.
Lagðar eru til breytingar á ýmsum lögum sem leiða til gjaldskrárlækkana. Um er að ræða 1% lækkun á bensíngjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gjaldi af áfengi og tóbaki, kolefnisgjaldi og raforkuskatti. Þessar gjaldskrár hafa þegar hækkað um 3% eins og ég hef áður rakið. Í frumvarpinu er einnig að finna lagfæringar á nýsamþykktum lögum um stimpilgjald í þá veru að reikna skuli álag frá eindaga en ekki gjalddaga líkt og núgildandi ákvæði laganna gera ráð fyrir.
Eins og menn geta getið sér til um mun þessi aðgerð lækka eldsneytisgjöld og áfengis- og tóbaksgjald um 1% sem aftur leiðir til þess að tekjur ríkissjóðs af umræddum gjaldstofnum munu lækka um 460 millj. kr. á ársgrundvelli samkvæmt áætlun. Þar af nemur lækkun eldsneytisgjalda nálægt 270 millj. kr. og áfengis- og tóbaksgjalds 190 millj. kr.
Þá er eðlilegt að spurt sé hvernig eigi að koma til móts við þær tekjubreytingar. Því er til að svara að uppi eru áform um að auka arðgreiðslur frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Það virðist vera gott svigrúm til að auka við arðgreiðslur þaðan til að mæta þessu um það bil þannig að aðgerðin ætti, þegar upp er staðið, ekki að hafa mikil áhrif, þegar þetta tvennt er skoðað saman.
Ekki er heldur hægt að útiloka að við skoðum fyrirkomulag við álagningu tóbaksgjalds í framhaldinu og veltum fyrir okkur hvort ríkið geti bætt sér upp tekjutapið með einhverjum breytingum á því. Ýmsar hugmyndir hafa verið viðraðar í gegnum tíðina en ekkert verið ákveðið.
Varðandi verðlagsáhrif er áætlað að vísitala neysluverðs geti lækkað um 0,08% verði frumvarpið að lögum svo fremi áhrifunum verði að öllu leyti velt út í verðlag. Lagfæring á lögum um stimpilgjald er hins vegar ekki talin hafa í för sér kostnað fyrir ríkissjóð.
Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.