gjaldskrárlækkanir o.fl.
Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra kemst ekki undan því að alvarlegasta framlagi ríkisstjórnarinnar til skattamála í aðdraganda þessara kjarasamninga var tekið svo illa af aðilum vinnumarkaðarins að ríkisstjórnin var gerð afturreka með það. Hún kom hér inn í þingið og þurfti að ganga hálfa leið að tillögu okkar í Samfylkingunni um skynsamlegri skattaútfærslu. Tillaga ríkisstjórnarinnar og höfuðáhersla hennar var að fólk með yfir 800 þús. kr. á mánuði, ríkustu 10% þjóðarinnar, fengi 4.500 kr. í skattalækkun á mánuði og til þess að svo mætti verða mátti fólkið sem fékk undir 250 þús. kr. ekki fá eina krónu í skattalækkun, ekki eina. Fólkið með 300 þús. kr. átti að fá 500 kr. í skattalækkun. Þetta var upplegg ríkisstjórnarinnar. Þetta var uppleggið sem hún var gerð afturreka með að hluta og sett var aðeins meiri félagsleg sanngirni inn í skattatillögurnar. Eftir stendur samt að lágtekjufólkið fékk ekkert út úr þessum skattatillögum og það var, eins og allir forustumenn verkalýðshreyfingarinnar voru sammála um, ein stærsta ástæðan fyrir þeim vandamálum sem verið hafa á því að fá samningana samþykkta í verkalýðsfélögunum.
Afstaða mín í þessu er afskaplega skýr og fjármálaráðherra getur skilið hana ef hann bara vill hlusta. Ég var á móti þessari hækkun sem ég taldi bera vitni um viljaleysi ríkisstjórnarinnar til að taka af alvöru þátt í mjög mikilvægu samfélagslegu verkefni. Ég fagna lækkuninni, en ég gagnrýni það að sambærileg lækkun sé ekki látin gilda um aðrar gjaldskrárhækkanir, þar með talið í heilbrigðisþjónustunni. Það er ekkert flókið við þetta. Ef menn meina eitthvað með því að hækka bara um 2% eiga þeir bara að hækka um 2% yfir línuna. Ég hefði kosið að þeir hefðu þetta á núlli yfir línuna og ekki séð ástæðu til annars. Það er hinn bitri sannleikur að hér er ríkisstjórnin ekki að koma með aðgerðir til að lækka gjaldskrár nema (Forseti hringir.) bara að litlum hluta. Eftir sitja gjaldskrárhækkanir á þá sem síst skyldi.