143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[15:35]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það er að sjálfsögðu engin meiningarmunur á milli okkar í þessum efnum. Út af fyrir sig held ég að ef menn kæmu að þessu borði — og það er undrunarefni hversu lítil orka hefur verið lögð í þetta af hálfu hæstv. ríkisstjórnar, mönnum finnst þetta kannski ekki stórt mál, 460 milljónir, en þetta er prinsippmál upp á vissan máta líka og endurspeglar ákveðna sýn. Það er eiginlega freistandi að gefa sér að menn hafi í önnum sínum í fjármálaráðuneytinu eða ríkisstjórn fundist langeinfaldast að skutla einhverjum aurum inn í bensíngjald og þungaskatt og sérstakt bensíngjald og áfengisgjald og tóbaksgjald og málið afgreitt. Engin hugsun á bak við þetta. (Gripið fram í: Verðlagsáhrif.) Verðlagsáhrif? Já, til þess að ná þeim.

En ef við horfum á þetta í aðeins stærra samhengi en því, hefði ekki verið gáfulegast að afla þessar tekna, eða þó meiri væri, með beinum sköttum og ganga vægar fram í að hækka gjöld, kostnaðargjöld af þessu tagi eða óbeina skatta? Hvað segir hv. þingmaður um það? Kannski ræðum við það betur á eftir við hæstv. fjármálaráðherra. En þeir völdu að taka verulegt tekjutap á ríkissjóð í lækkun beinna skatta sem eru, eins og allir vita, inn í samhengið sem hv. þm. Árni Páll Árnason nefnir, allt annað dæmi en krónutöluhækkanir og gjöld og svo hækkun á óbeinum sköttum, sem að sjálfsögðu er miklu nær því vandamáli að ríkið sé í raun og veru að kynda undir verðbólgu og skapa verðbólguvæntingar.