gjaldskrárlækkanir o.fl.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað nauðsynlegt að hafa í huga heildarmyndina sem ríkisstjórnin lagði upp með. Hún lagði lykkju á leið sína og barðist hér um á hæl og hnakka til að reyna að tryggja ríkustu 10% þjóðarinnar 4.500 kr. skattalækkun á mánuði á meðan fólkið með undir 250 þúsund mátti ekki fá neitt. Það fólk þarf hins vegar að borga 20% hækkun í komugjöldum á heilsugæslu, nákvæmlega eins og ríkasta fólkið í landinu. Það er sú ósanngirni af hálfu ríkisstjórnarinnar sem stendur eftir þegar heildarmyndin er skoðuð.
Í því felst einbeittur vilji ríkisstjórnarinnar til að flytja skattbyrði úr hinu almenna skattkerfi, þar sem tekjujöfnunaráhrifa gætir, og yfir í alls konar nefskatta. Við sáum það fyrir jól þegar hér var ákveðið að útvarpsgjaldið muni ekki skila sér til Ríkisútvarpsins nema að hluta og restin fari í ríkissjóð. Við sáum líka að lagðir voru sérstakir skattar á námsmenn með innritunargjöldum sem ekki skiluðu sér í ríkissjóð o.s.frv.
Með öðrum orðum er þetta skipuleg aðför að tekjujöfnunarkerfi tekjuskattskerfisins. Það er verið að reyna að flytja sífellt ríkari hluta skattbyrðinnar yfir á nefskatta þar sem allir borga jafnt óháð tekjum. Það er auðvitað sú ójafnaðarvegferð sem er það hættulegasta í uppleggi ríkisstjórnarinnar. Hæstv. fjármálaráðherra sagði áðan að það væri allt í lagi að hækka komugjöld vegna þess að þau hefðu ekkert hækkað í mörg ár. Sú þróun hefur átt sér stað frá 2005 að hlutir hafa flust úr hinu almenna heilbrigðiskerfi og eru núna borgaðir að fullu af einstaklingunum og þar með, enn og aftur, þurfa allir að borga jafnt óháð tekjum. Það er sá grundvallarvandi sem við er að etja. Ríkisstjórnin er að keppast við (Forseti hringir.) að auka ójafnaðaráhrif, nýta tekjuöflunina til að auka ójöfnuð í samfélaginu.