143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[16:15]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Heldur betur man ég nú eftir því. Ætli það hafi ekki verið á útmánuðum 2011 sem var gert mjög hart áhlaup á mig sem fjármálaráðherra að lækka bensíngjöld vegna þess að þá hafði heimsmarkaðsverð á olíu hækkað mjög mikið. Sjálfstæðisflokkurinn var hér með frumvarp um 20–25 kr. lækkun á lítrann, ef ég man rétt, eitthvað af þeirri stærðargráðu, sem ég stóð gegn, m.a. með því að vísa til þess að önnur lönd hefðu ekki brugðist þannig við hækkuðu eldsneytisverði, þetta væri ekki tímabundin bóla heldur komin til að vera og menn yrðu að aðlaga sig því að verð á jarðefnaeldsneyti yrði hátt á komandi árum og færi frekar hækkandi en hitt til framtíðar litið.

Nú hefur það sem betur fer heldur lækkað úr þeim 250 kr. sem það var í 230 plús/mínus. Það má því segja að styrking gengisins og lægra heimsmarkaðsverð á olíu hafi fært neytendum þessar 20–25 kr. sem Sjálfstæðisflokkurinn lofaði í stjórnarandstöðu og þar með svara ég þeirri spurningu. (Forseti hringir.) Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki skipt um eðli eða skoðun, því miður, en hann er ekki lengur í stjórnarandstöðu.