143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[16:16]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að lýsa vonbrigðum mínum með það að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er ekki í salnum. Mér hefði þótt betra ef hann mundi hlusta á ræðu mína en ég vona að hann sé einhvers staðar við skjá og komi þá seinna í dag til að svara þeim spurningum sem ég ber fram.

Við ræðum frumvarp til laga um gjaldskrárlækkanir o.fl. og eins og fram hefur komið erum við að ræða lækkun á olíugjaldi og kílómetragjaldi, lækkanir á vörugjaldi af ökutækjum, eldsneyti o.fl., lækkun á umhverfis- og auðlindasköttum, lækkun á gjaldi af áfengi og tóbaki og breytingu á lögum um stimpilgjald. Í athugasemdum við frumvarpið er vísað í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2013 sem kynnt var Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandi Íslands í tengslum við kjarasamninga. Í yfirlýsingunni segir, með leyfi forseta:

„Ríkisstjórnin lýsir því yfir að hún muni við samþykkt kjarasamninga endurskoða til lækkunar vissar breytingar á gjöldum sem samþykktar hafa verið í tengslum við afgreiðslu fjárlaga 2014 til að stuðla að því að verðlagsáhrif, sem af þeim leiði, verði minni en ella og innan verðbólgumarkmiða Seðlabanka Íslands.“

Þó að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands sé 2,5% er gert ráð fyrir að gjöldin fari úr 3% í 2% og í athugasemdum með frumvarpinu kemur einnig fram að sú aðgerð að lækka eldsneytisgjöld og áfengis- og tóbaksgjöld um 1% leiði til þess að tekjur ríkissjóðs muni lækka um 460 millj. kr. á ársgrundvelli. Þar af nemur lækkun eldsneytisgjalda nálægt 270 millj. kr. og áfengis- og tóbaksgjalda 190 millj. kr. Þeirri lækkun verður mætt með áformum um breytt fyrirkomulag við álagningu tóbaksgjalds sem ekki er nánar útfært í frumvarpinu. Nú þurfum við að fá skýringar á þessu og fáum þær sennilega þegar búið er að ákveða hvernig þetta eigi að vera, en ég skil ekki alveg hvernig breytt fyrirkomulag við álagningu tóbaksgjalds á að koma fram í lægra gjaldi. Látum þó gott heita, við fáum væntanlega skýringar á því.

Síðan á að mæta afganginum með auknum arðgreiðslum frá ÁTVR. Umræður um það voru hér áðan þar sem bæði var bent á að þarna væri um einskiptisaðgerð að ræða og einnig drógu menn í efa að arðgreiðslurnar kæmu þá ekki aftur fram í hærra gjaldi ÁTVR. Við þurfum að fylgjast með þessu og komast að því hver raunin verður. Afkoma ríkissjóðs á þrátt fyrir þessa lækkun að haldast óbreytt frá áætlun fjárlaga. Síðan er tilgreint að vísitala neysluverðs muni lækka um 0,08% verði frumvarpið að lögum og áhrifin skili sér að öllu leyti í lægra verði og samsvarandi aukningu á kaupmætti ráðstöfunartekna.

Mér finnst þetta allt gott og blessað þótt einhverjir lausir endar séu á þessari ráðstöfun hæstv. ríkisstjórnar. Ég spyr þó: Hvað um breytingar á öðrum gjaldskrám? Hvað um ráðstöfunartekjur þeirra sem þurfa til dæmis að nýta sér hjálpartæki, svo sem öndunarvélar, bleiur, öryggiskallkerfi, gervibrjóst, hjálpartæki í bifreið eða í baði, stafi eða hækjur? Þeir sem þurfa að nýta sér þessi hjálpartæki eru sem betur fer ekki eins margir og þeir sem kaupa sér áfengi og tóbak. Þetta eru einstaklingar sem þurfa nauðsynlega á þessum hjálpartækjum að halda til að eiga möguleika á einhverjum lífsgæðum en svo er aldeilis ekki með þá sem nota tóbak eða áfengi í óhófi.

Samkvæmt svari heilbrigðisráðherra við spurningum mínum um breytingar á reglum sem tóku gildi 1. janúar sl. um úthlutun hjálpartækja notenda samkvæmt reglugerð um styrki vegna hjálpartækja kemur það fram sem ég ætla að fara yfir núna.

Í fyrsta lagi eru CPAP-öndunarvélar. Hlutur barna og lífeyrisþega í leigugjöldum vegna CPAP hækkar um 76% og hlutur annarra í leigugjöldum vegna þessa hækkar um 77%. Þetta er veruleg hækkun. Þó að upphæðin sé í sjálfu sér ekki há er þetta hlutfallslega mikil hækkun á öndunarvélum.

Síðan segir um gervibrjóst:

„Almennt þrenging á reglum. Í auknum mæli eru brjóst byggð upp við brjóstmissi vegna krabbameins. Því er reglum um árlegan styrk til kaupa á gervibrjóstum/brjóstfleygum breytt. Reglur um styrki hafa breyst annars staðar á Norðurlöndunum og eru þær hafðar til hliðsjónar. Þar eru ekki veittir styrkir til kaupa á sundbolum eða brjóstahöldum.“

Þarna er aukaálag á þær konur sem ekki láta byggja upp brjóst sín. Þær vilja ekki allar fara í aðgerðir eftir að búið er að taka af þeim brjóstin.

Síðan eru bleiur. Greiðsluhlutdeild Sjúkratrygginga Íslands er lækkuð. Sjúkratryggingar Íslands greiddu bleiurnar að fullu en frá 1. janúar 2014 greiða þær aðeins 90%. Síðan stendur í svarinu að óljóst sé hvort lækkun á virðisaukaskatti á bleium fyrir fullorðna nái fram að ganga sem mildar kostnaðaráhrif á notendur. Ef hún nær ekki fram að ganga er þarna 66% munur. Ef hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kemur í umræðuna á eftir þætti mér vænt um að hann mundi útskýra fyrir okkur hvers vegna það er óljóst að þessi lækkun á virðisaukaskatti á bleium nái til fullorðinna. Það er undarlegt að þegar rúmlega tveir mánuðir eru búnir af þessu ári sé ekki komið í ljós hvernig á að útfæra þetta fyrir fullorðna.

Síðan er talað um bað- og sturtustóla með og án hjóla. Þar er einnig þrengt á reglum um hjálpartæki við snyrtingu og böðun, svo sem baðkersbretti og baðkerssæti. Kostnaðarþátttaka er nú bundin við tilgreinda alvarlega/erfiða sjúkdóma og þrengingin kemur aðallega við aldraða.

Svo eru hjálpartæki í bifreið. Þar er einnig þrenging á reglu. Skilyrði fyrir styrkveitingu á miklum og sérhæfðum breytingum á bifreiðum er að einstaklingur sé virkur og stundi vinnu/skóla alla virka daga.

Við stafi, hækjur og snúningshjálpartæki er líka þrenging á reglum og styrkur er nú bundinn við tiltekna sjúkdóma.

Við rafknúna hjólastóla er sömuleiðis þrenging á reglu.

Við öryggiskallkerfi lækkar hlutur Sjúkratrygginga Íslands á mánuði til þjónustufyrirtækja á hvern notanda um 18%.

Virðulegi forseti. Alls eiga þessar ráðstafanir að skila 150 millj. kr. til að lækka útgjöld og bæta stöðu ríkissjóðs. Ég minni í þessu sambandi á að veiðigjöld voru lækkuð um 6,4 milljarða í ár, gjöld á atvinnugrein sem hefur aldrei skilað eins miklum arði til þeirra sem hafa sérleyfi til nýtingar auðlindar þjóðarinnar og nú.

Hækkun á neysluskatti sem erlendir ferðamenn greiða að mestu var einnig afþökkuð en áætlað var að hann gæfi 1.500 milljónir til ríkissjóðs. Hæstv. ríkisstjórn finnst samt að hækka þurfi gjöld sem þeir greiða sem veikastir standa og það á að reyta af þeim 150 millj. kr. vegna hjálpartækja. Verðhækkanir vegna hjálpartækja koma niður á þeim sem eru allra verst settir. Flestir þeirra geta sér litla sem enga björg veitt án þeirra. Fyrir þá einstaklinga er þetta mikil kjarabreyting til hins verra og ég tel nauðsynlegt að um leið og það frumvarp sem hér er til umræðu fær þinglega meðferð verði farið yfir aðrar gjaldskrárhækkanir og þær lækkaðar til að auka kaupmátt fleiri og jafna stöðu fólks í landinu.

Greiðslur sjúkratryggðra fyrir sjúkra-, tal- og iðjuþjálfun hafa líka hækkað umtalsvert frá því í febrúar í ár. Vegna sjúkraþjálfunar er hækkun á milli áranna 2013 og 2014 4% hjá börnum undir 18 ára og einstaklingum með umönnunarkort frá TR. Hún er 13%, hækkunin á sjúkraþjálfun hjá öldruðum og lífeyrisþegum með óskerta tekjutryggingu. Aldraðir og lífeyrisþegar með óskerta tekjutryggingu vegna meðferðar umfram 30 á hverju 365 daga tímabili borguðu ekki neitt en þurfa nú að borga 492 kr. fyrir meðferðina. Síðan hækkar gjaldskráin um 13% hjá öldruðum og lífeyrisþegum með skerta tekjutryggingu, um 56% hjá öldruðum og lífeyrisþegum með skerta tekjutryggingu vegna meðferða umfram 30 á hverju 365 daga tímabili og 10% hjá öldruðum og lífeyrisþegum án tekjutryggingar. Gjöld aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar vegna meðferða umfram 30 á hverju 365 daga tímabili hækka um 32% og hækkunin hjá almennum sjúklingum er 43%.

Þarna eru hækkanir umtalsvert umfram vísitölu og verðlag.

Hið sama er að segja um talþjálfun. Þar er hækkunin frá 5% upp í 16% eftir lengd meðferða hjá börnum undir 18 ára og einstaklingum með umönnunarkort, frá 13% upp í 26% hjá öldruðum og lífeyrisþegum með óskerta tekjutryggingu. Aldraðir og lífeyrisþegar með óskerta tekjutryggingu vegna meðferða umfram 30 á hverju 365 daga tímabili sem greiddu ekki neitt áður greiða núna allt upp í 1.220 kr. fyrir 60 mínútna meðferð og svona mætti lengi telja.

Mesta hækkunin er hjá öldruðum og lífeyrisþegum með skerta tekjutryggingu þegar meðferðin er löng. Hækkunin fer allt upp í 74%. Tíminn leyfir mér ekki að fara yfir allar þessar hækkanir en þetta er allt saman langt umfram verðlag og mjög miklar hækkanir hjá fólki í vanda sem þarf að nýta sér sjúkra-, tal- og iðjuþjálfun.

Mér finnst rétt að endurskoða þessi gjöld vegna þess að kjör þeirra sem þurfa á þessari aðstoð að halda og glíma við þessar gjaldskrárhækkanir versna auðsjáanlega. Með hækkuðum gjöldum vegna hjálpartækja og þjálfunar er verið að auka greiðslubyrði þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Það kemur niður á kjörum þeirra og þessir einstaklingar geta ekki valið að þiggja ekki þjónustuna heldur er hún þeim nauðsynleg. Ríkissjóður á að hagnast samtals um 250 milljónir með aukinni greiðsluþátttöku einstaklinga sem þurfa nauðsynlega á hjálpartækjum eða þjálfun að halda.

Lækkun á tóbaks- og áfengisgjöldum nemur um 190 milljónum samkvæmt því frumvarpi sem við ræðum nú, lækkun á vörum sem flestir geta valið að kaupa ekki, vörum sem valda ofneyslusjúkdómum sem kosta samfélagið enn hærri upphæð. Þarna finnst mér forgangsröðunin ekki rétt og ég skora á hæstv. ríkisstjórn að skipta um kúrs hvað þetta varðar.

Ég hef ekki farið yfir fleiri gjaldskrárhækkanir í heilbrigðisþjónustunni en þar er til dæmis 20% hækkun á komugjöldum. Komugjöld til sérfræðinga hafa hækkað um 19% en mér skilst að hækkanir vegna kjarasamninga sérgreinalækna á síðasta ári hafi ekki birst í gjaldskrám. Ég spyr hvort við eigum von á hækkunum vegna þessara kjarasamninga sérfræðinga eða sérgreinalækna.

Komugjöld á slysa- og bráðamóttökur og göngudeildir sjúkrahúsa hafa hækkað um 4–7%. Gjöld fyrir keisaraskurði og kransæða- og hjartaþræðingu hafa einnig hækkað um 5–7%. Gjöld vegna rannsókna og greininga hafa hækkað umtalsvert, kringum 10%, og svo mætti áfram telja.

Ég hef áhyggjur af því að stefna þessarar ríkisstjórnar muni leiða til ójöfnuðar í samfélaginu og mér finnst að þegar ákveðið er að fara slíka gjaldalækkunarleið til að bæta kaupmátt og passa að það hafi ekki áhrif á verðlagið verði að skoða þetta í víðara samhengi. Ég átta mig alveg á því að hjálpartækin eru ekki reiknuð inn í vísitöluna en það eru sanngirnissjónarmið sem hlýtur að verða að skoða í þessu tilliti. Ég vona að nefndin sem mun vinna með þetta frumvarp muni taka það til gaumgæfilegrar (Forseti hringir.) athugunar.