143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[17:03]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Og það er ekkert að mati einhverra, það er að mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem horfir sérstaklega til norrænu einokunarkerfanna varðandi áfengis- og tóbakssölu og telur það til mikillar fyrirmyndar. Rannsóknir sýna að besta leiðin til að draga úr notkun áfengis og tóbaks er í gegnum skert aðgengi og hátt vöruverð sem auðvitað næst fram með skattlagningu.

Ég ætla ekki að gerast neinn sérstakur talsmaður bindindis hér þó að ég sé mikil stuðningskona einokunar á áfengissölu og telji eðlilegt að við beitum þeim stjórntækjum sem við getum til að draga úr skaðsemi áfengis á Íslandi. En þegar við horfum á það að eitthvert svigrúm sé til að lækka álögur á íslensk heimili þá finnst mér sú forgangsröðun ákaflega einkennileg að draga úr álögum á bensín, á koltvísýring, sem er sérstakt umhverfisvandamál, og á áfengi og tóbak. Þeir sem ekki fá sérstakar ívilnanir af hálfu ríkisins og þurfa að sitja uppi með hækkuð gjöld eru þeir sem nýta sér heilsugæsluþjónustu og þurfa á hjálpartækjum og þjálfun að halda. Ég er ósammála þeirri forgangsröðun. Það er svo einfalt.