143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[17:40]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að afar skynsamlegt sé að nefndin taki frumvarpið upp, helst að sem mestu leyti, það væri best. Gjaldtaka af þeim sem lítið hafa er auðvitað ekki í anda þess velferðarsamfélags sem ég vil trúa að flestir vilji byggja upp. Ég tek undir með hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni þegar hann sagði áðan að þetta hefði kannski verið eitt af því sem hefði verið ákveðið sisvona, þetta væri einfalt og krefðist ekki mikillar útfærslu og það hefði ekki verið hugsað til enda hvað kæmi neytendum í þessu samfélagi best. Ef það hefði verið gert hlyti hæstv. fjármálaráðherra að hafa komist að einhverri annarri niðurstöðu en hann gerði.