143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[17:41]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Frumvarpið er náttúrlega liður í því að draga úr verðbólgu, það er eitt af framlögum ríkisins í gerð kjarasamninga. Í frumvarpinu segir einmitt að krónutölugjöld og nefskattar séu mikilvægur hluti af tekjuáætlun fjárlaga hvers árs en að þeir hækki ekki sjálfvirkt í takt við verðlag, heldur þurfi að breyta lögum eigi þeir að fá verðlagsuppfærslu. Ég held að það sé mjög gott, það er ekki gott að skattálögur ríkisins hækki sjálfkrafa í takt við verðlag heldur sé það ákvörðun Alþingis hverju sinni, enda mikilvægt að halda aftur með öllum mögulegum leiðum af verðbólgu.

Það er líka þannig að þessi gjöld hafa mjög mismunandi hlutverk. Þau afla ríkissjóði tekna, sem er alltaf mikilvægt og ekki veitir af á þessum tímum, en þau hafa líka ákveðið neyslustýringargildi. Þar er veðteygni mismunandi og þarf að taka tillit til þess, en álögur á bensín, áfengi og tóbak eru ekki síst til þess fallnar að hafa áhrif á neyslu út frá heilsufars- og umhverfisverndarsjónarmiðum. Gjöld fyrir sjúklinga hafa verið rædd mikið hér, en ólíkt því sem sumir virðast halda þá verður fólk veikt óháð því hvert verð á heilbrigðisþjónustu er. Það alvarlega í þessu er að fólk gæti þurft að neita sér um hana og gerir það í vaxandi mæli á Íslandi vegna þess að hún er kostnaðarsöm. Því spyr ég hv. þingmann hvort hún telji rétt (Forseti hringir.) varðandi það markmið að draga úr verðbólgu, að lækka (Forseti hringir.) neyslustýringarskattana í stað þess að lækka (Forseti hringir.) þjónustugjöld sjúklinga.