143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[17:46]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Baráttan í ríkisfjármálunum eftir hrun hefur staðið um að reyna að tryggja velferðar- og menntakerfið og grunnstoðir samfélagsins en á sama tíma að ná niður hallanum á ríkissjóði til þess að við getum byrjað að greiða niður skuldir sem valda vaxtaútgjöldum árlega og eru til búsifja fyrir íslenskt samfélag.

Það var nú svolítið merkilegt í fjárlagaumræðunni, þá töluðu stjórnarliðar eins og þetta væri þeirra markmið og að minni hlutinn hefði eiginlega aldrei hugleitt þessi mál — og við sem stóðum hér í mjög leiðinlegum verkefnum. Þá velti ég því fyrir mér hvort það væri ákveðið sjónarspil að stefna hér að hallalausum fjárlögum. Þeim fannst mikilvægt að hafa það táknrænt þó að allir viti að fjárlögin verða ekki hallalaus. (Forseti hringir.) Hvaða áhrif hefur frumvarpið á hin hallalausu fjárlög hægri stjórnarinnar?