143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[17:49]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka þingmanninum ræðuna. Nú er þetta frumvarp lagt fram og eftir því sem segir í greinargerð lofa þeir að reyna að greiða fyrir kjarasamningum. Því er stillt upp fyrir fólki að ef almennt launafólk fengi meira en 2,5% launahækkun væri það ábyrgt fyrir því að verðbólguhjólið færi aftur af stað en á sama tíma var í fjárlagafrumvarpinu hækkun upp á 3% á þeim gjöldum sem hér er verið að lækka, og nú er þetta lækkað niður í 2%.

Ég held að við hv. þingmaður séum sammála um að það eru önnur gjöld en nákvæmlega þessi sem hefði frekar átt að lækka. Við höfum talað um komugjöld á heilsugæslustöðvar og það hefur verið talað um hjálpartæki og annað slíkt, af því að menn segja: Þetta er þægilegast, þessi aðferð.

Er það ekki einmitt líka vegna þess að þessi gjöld telja beint inn í vísitölu? Er það ekki voðalega einfalt? Af því að gjöldin telja beint inn í vísitöluna er sniðugast að lækka þau. En (Forseti hringir.) það er líka hægt að nota skattkerfið til neyslustýringar (Forseti hringir.) og til að létta undir með ákveðnum hópum í þjóðfélaginu.