143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[17:55]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður tók rétt eftir. Það kemur til dæmis fram á minnisblaði innanríkisráðuneytisins að ákveðið er að hafa Vegagerðina ekki á veikleikalista þrátt fyrir uppsafnaðan halla og er fyrirséð 700 millj. kr. ófjármögnuð vetrarþjónusta. Það er ákvörðun að gera það ekki og ég tel hana afar óeðlilega.

Maður sér að ekki eru lagðar fram áætlanir til dæmis um menntamálin og skólana, landbúnaðarháskólana og framhaldsskólana, þar sem liggur fyrir að er vandi og að það er undirfjármagnað. Því hefur ekki verið tekið á og er ekki tekið á því á árinu og er alveg ljóst að þó svo að gripið yrði til ráðstafana í september eða eitthvað slíkt dekkar það ekki þann halla sem hér er um að ræða. Þess vegna finnst mér grafalvarlegt mál þegar ráðherrar og ráðuneyti, eða ráðherrarnir því að það eru þeir sem marka sporin í þessu og ríkisstjórnin, (Forseti hringir.) leyfa sér að horfa algjörlega fram hjá vituðum vanda.