143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[18:14]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er alveg rétt sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson segir, það kunna að vera einhver mörk sem ráða því hvort menn fara út í heimabrugg. Það er svolítið merkilegt að fylgjast með stöðu Íslands varðandi hve mikils við neytum af áfengum drykkjum umreiknað í 100% alkóhól. Það er mælikvarði sem við notum, ég held við séum komin upp í sex til átta lítra, vorum í tveimur, þremur lítrum. Frakkarnir, þeir sem eru með mest, eru með 16–17 lítra á ári. Þar eru mestu áfengisvandamálin.

Það er merkilegt að skoða hvar þessi mörk liggja. Menn hafa gert tilraunir til að meta þetta og eru stöðugt að því, bæði heimabrugg og eins hve mikið er flutt inn að utan í gegnum flughöfnina. Nú hefur það aukist, það má flytja meira þar í gegn en áður, sérstaklega af bjór. Menn hafa líka verið með neyslustýringu á þessum skattálögum, það er meira álag á sterku vínin en hin.

Ég held að þetta sé ekki sami þáttur og menn láta. Ég held því sjálfur fram. Ég held þetta sé sama fullyrðing og þegar menn segja: Hærri skattar, meiri skattsvik. Það er ekkert sem bendir til þess. Það er ákveðinn hópur sem er alltaf að reyna að koma sér hjá því að greiða gjöld. Þeir afsaka sig með þessu. Það er ákveðinn hópur í samfélaginu sem borgar alltaf sín gjöld og er ekkert að reyna að komast hjá því. Auðvitað kunna að vera einhver mörk, ef við værum með 90% skatt eða eitthvað slíkt, eða 80%, hugsanlega liggja þessi mörk einhvers staðar en ekkert bendir til þess að við höfum verið að hreyfa okkur á því bili að þetta hafi veruleg áhrif.

Menn hafa slegið úr og í varðandi neyslustýringu með gjöldum. Sumir segja: Hækkum gjöldin og þá minnkar notkun. Aðrir segja á móti: Hún minnkar tímabundið og svo gleyma menn því og fara að eyða því hvort sem er. Ég kann ekki svör við því hvort er rétt. Menn hafa haft um þetta ólíkar skoðanir og hafa gjarnan notað rökin í báðar áttir, sömu aðilar. Sjálfstæðismenn hafa verið sérstaklega duglegir við að segja að ekki sé hægt að neyslustýra með gjöldum en svo færa þeir rök fyrir því í hina áttina, að með því að lækka þau aukist notkun.