143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[19:11]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Við erum sammála um það, hv. þingmaður og ég, að það mætti gera meira til að reyna að stuðla að jöfnuði í þjóðfélaginu. Kannski hefði mátt útfæra þessa gjaldalækkun öðruvísi en hér er gert til að auka jöfnuð í þjóðfélaginu.

Þingmaðurinn nefndi veiðigjöld og virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Nú hefur svo sem verið talað um það oft áður. En þær aðgerðir eru einkennandi fyrir þessa ríkisstjórn, finnst mér, þ.e. að leggja þessi gjöld ekki á, þetta eru náttúrlega álögur, og hlífa þeim sem gengur svona gífurlega vel eins og sjávarútveginum sem betur fer gengur núna og ferðaþjónustunni líka. Er (Forseti hringir.) hv. þingmaður sammála mér um að þessar greinar mættu leggja meira til samfélagsins (Forseti hringir.) en þær gera í dag?