gjaldskrárlækkanir o.fl.
Herra forseti. Ég tel að það hljóti að vera mönnum ljóst á hvaða forsendum þetta frumvarp er lagt fram. Þetta frumvarp er lagt fram til að draga úr verðlagsáhrifum krónutölugjalda og skatta. Það tengist gerð kjarasamninga. Þetta er einfalt frumvarp. Við ákveðum að þessi krónutölugjöld og þessir krónutöluskattar hækki eingöngu um 2% en ekki 3% eins og til stóð. Það þýðir 1 prósentustiga lækkun frá því sem áður var áformað.
Það er alger óþarfi að setja þetta í eitthvert samhengi við valkostina: Hvers vegna ekki að draga úr sértekjum heilsugæslunnar? Það væri alveg eins hægt að spyrja hvers vegna við hækkuðum ekki bara tekjuskattinn almennt til að þurfa ekki að innheimta komugjöld á heilsugæslu eða hvað sem er annað. Hvers vegna ekki að taka aðeins hærra veiðigjald til að þurfa ekki að innheimta komugjald á heilsugæsluna eða hvaða annað gjald sem er? Í sjálfu sér er ómögulegt að botna umræðu sem sett er af stað með þessum hætti vegna þess að hún nær langt út fyrir það frumvarp sem við erum að ræða.
Ég hef verið spurður að því hér í umræðunni hvort það komi til greina að hafa samsetningu lækkunarinnar með einhverjum öðrum hætti. Frumvarpið er mjög einfalt eins og ég hef komið inn á. Við tökum einfaldlega þau gjöld sem hafa mest áhrif á verðlagið og lækkum þau um 1 prósentustig. Með því að gera það þannig fórum við ekki í að gera upp á milli einstakra vöruflokka eins og að segja: Lækkum ekki áfengis- og tóbaksgjöld, lækkum frekar meira eldsneytisgjöldin. Spurningin er: Hvar hefðum við átt að enda í þessu uppgjöri valkostanna? Einfaldasta leiðin var að draga einfaldlega strik í sandinn og segja: Þessi gjöld heilt yfir hækka einfaldlega minna en áður var áformað.
Komist þingið hins vegar að þeirri niðurstöðu að það sé betra að fara einhverja aðra leið og það geti jafnvel haft enn betri áhrif til lækkunar á vísitölu verðlags (Forseti hringir.) ætla ég ekki að standa í vegi fyrir því; það má vel skoða það í nefndinni.
Ég vil að öðru leyti þakka fyrir ágætlega málefnaleg innlegg frá hv. (Forseti hringir.) þingmanni.