143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

náttúruvernd.

167. mál
[20:54]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hlý orð í minn garð en ítreka það sem ég segi að nefndin öll á heiðurinn af þeirri vinnu sem fram fór og þeirri sátt sem náðist; og ekki má undanskilja ráðherra, nefndarritara og fleiri sem tóku þátt í vinnunni.

Ég sé þetta einfaldlega þannig fyrir mér að ráðuneytið muni hefja vinnu við breytingartillögu á þeim þáttum sem tilgreindir eru í nefndarálitinu og menn eru sammála um að þurfi að skoða betur. Það getur verið af ýmsum ástæðum sem það er, lagatæknilegum og fleirum, en útgangspunkturinn er sá að eftir mun væntanlega og vonandi standa mjög vönduð umgjörð um náttúruvernd á Íslandi.

Mér skilst og vona að samkomulag sem var gert um framkvæmd málsins muni halda. Þar er kveðið mjög skýrt á um það að nefndin vill hafa aðkomu að málinu á öllum stigum. Það var afar ánægjulegt að finna að ríkur vilji var til þess í umhverfisráðuneytinu.