143. löggjafarþing — 76. fundur,  18. mars 2014.

náttúruvernd.

167. mál
[20:56]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það er mikilvægt að hæstv. umhverfisráðherra sé þátttakandi í þessu máli. Hann hefur auðvitað verið á hliðarlínunni í samstarfi við nefndina. Ég vil bara að það sé sagt hér að minn skilningur á ferli málsins er sá að málið fari nú til frekari vinnslu í ljósi þessarar niðurstöðu í umhverfisráðuneytinu. Í haust komi síðan drög sem nefndin fari yfir, en málið fari eftir það aftur til ráðuneytisins. Ég vona að við getum þá á vorþingi eftir ár lokið við ný náttúruverndarlög sem byggja á þeirri vinnu sem unnin hefur verið og í anda þeirrar sáttar sem náðst hefur í þessu máli.