143. löggjafarþing — 77. fundur,  19. mars 2014.

störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Ég vil segja nokkur orð vegna þess sem fram kom í máli hv. þm. Elsu Láru Arnardóttur fyrr í þessari umræðu. Það mun ekki standa á stjórnarandstöðunni, a.m.k. ekki þingflokki Bjartrar framtíðar, að greiða fyrir því að þau mál sem hún fjallaði um komist á dagskrá. En það er því miður þannig að þessi stóru mál ríkisstjórnarinnar hafa ekki enn komið hingað inn til þings en það er ekkert í dagskránni og ekkert í skipulagi þingsins sem á að koma í veg fyrir að þau verði tekin á dagskrá. Menn bíða bara og það styttist í þinginu, styttist í þeim dögum sem við höfum til stefnu til að fara yfir þessi mál.

Ég minni á það að hér í aðdraganda jóla var afgreitt risavaxið mál; það þurfti ekki eitt og ekki tvö heldur fleiri sjónvarpsviðtöl við sama stjórnmálamanninn til að rifja upp hvernig risavaxnar upphæðir hefðu komið til. Og hann þurfti að hugsa upphátt með mjög óhefðbundnum hætti hvernig þetta hefði nú komið til allt saman. Það var dæmi um það sem gerist þegar menn eru að vinna hér í þinginu risavaxin mál á allt of skömmum tíma. Þessi vísa er aldrei of oft kveðin en því miður virðast menn einfaldlega ekki geta breytt þessu fyrirkomulagi. Ráðuneytin taka að því er virðist við vel meinandi þingmönnum og breyta þeim í síðasta ráðherra sem þau höfðu. Það er alltaf verið að skila málum of seint hér inn í þingið. Manni dettur stundum í hug að það sé bara algerlega ómögulegt að vinna á þessu lögmáli, að það geti enginn þingmaður og enginn mannlegur máttur breytt því þannig að þingmálum sé skilað í tæka tíð inn í þingið.

Eða er það kannski svo, fer maður að hugsa, að menn vilja bara alls ekki gefa þinginu tíma til að vinna málið, að það geti bara leitt einhver ósköp yfir land og þjóð ef þingmenn fá tíma til að krukka í mál. Ég get ekki annað en tekið undir með hv. þingmanni og sagt að það liggur auðvitað á að fá þessi mál til meðferðar þó að minn þingflokkur hafi mikinn fyrirvara á þeim málaflokki sem hún nefndi hér.