143. löggjafarþing — 77. fundur,  19. mars 2014.

staða framhaldsskólans.

[15:41]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hv. þingmanni fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga máli. Hvað varðar áherslur mínar varðandi framtíð framhaldsskólans þá má orða hana svo, það er einfaldast, að ungmenni á Íslandi, nemendur á Íslandi, hafi jafn góð tækifæri til að mennta sig og nýta tíma sinn og gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Ég held að það rammi það ágætlega inn að þau geti búið sig undir störf og leik í nútímasamfélagi, samfélagi sem við eigum reyndar erfitt með, og er kannski ómögulegt, að spá fyrir um hvernig verður þegar kemur að námslokum þeirra ungmenna og alvaran blasir við.

Ég vil nefna hér nokkur atriði sem ég legg áherslu á í þessu sambandi. Það er að við endurskipuleggjum námstímann þannig að meginreglan verði sú að nemendur ljúki námi á þremur árum í stað fjögurra núna. Það þýðir ekki að allir nemendur klári á þremur árum heldur að það verði meginreglan. Áfram verður unnið að því að draga úr brotthvarfi. Brotthvarfið er alveg gríðarlega dýrt. Við sáum skýrslu á dögunum þar sem talið var að brotthvarfið kostaði upp undir 52 milljarða fyrir utan auðvitað það sem snýr að einstaklingnum sjálfum, þ.e. þegar hann nær ekki að klára það sem hann byrjaði á, hvaða áhrif það hefur á hann.

Ég tel alveg augljóst að töluverð tækifæri séu til að bæta skólakerfið okkar og horfi meðal annars til þess að einungis 44% af nemendum á Íslandi ljúka námi á tilsettum tíma. Við erum þar töluvert langt á eftir flestum öðrum þjóðum sem við berum okkur saman við.

Mér finnst það skipta máli og ég tel að það séu tækifæri til að gera betur. Hvað varðar kjarasamningana sem hér var komið inn á vil ég segja eftirfarandi: Okkur, hinu opinbera, ríkinu, er skorinn nokkuð þröngur stakkur hvað það varðar að búið er að gera samninga á almenna markaðnum. Ríkið getur ekki undir nokkrum kringumstæðum látið eins og slíkir samningar hafi ekki verið gerðir. Við hljótum því að þurfa að taka tillit til þess. Ég hef aftur á móti sagt að með því að gerðar séu kerfisbreytingar í framhaldsskólanum sé hægt að rökstyðja það að hægt sé að hækka laun kennara umfram það sem verður gert á almennum markaði. Takið eftir því, það er ekki svo að það sé vandamálið í þessum kjaraviðræðum og getur ekki verið það. Vandamálið væri fyrst það ef menn væru bundnir við það og stæðu frammi fyrir þeim kjarasamningum sem gerðir voru á almennum markaði og það væri eini möguleikinn.

Ég vil nefna hitt líka að það er mikilvægt hvað varðar núverandi stöðu mála að lögin frá 2008 hafa búið til heilmikið svigrúm fyrir okkur. Lögð hefur verið áhersla á það allt frá því að þau lög voru sett að skólar skipuleggi námsbrautir sínar þannig að nemendur geti lokið námi á skemmri tíma en áður. Árið 2011, á síðasta kjörtímabili, þegar aðalnámskrá framhaldsskóla kom út, voru sett eftirfarandi ákvæði um lengd stúdentsprófs sem ég vil vekja hér athygli á vegna þessarar umræðu:

1. Námstími til stúdentsprófs verði breytilegur milli námsbrauta og skóla, en framlag nemenda skal þá aldrei vera minna en 200 fein, nýjar framhaldsskólaeiningar.

Þær framhaldsskólaeiningar byggja á þeirri skilgreiningu að hver eining samsvari um það bil þriggja daga vinnu nemenda sem þýðir að fullt nám er 60 fein á námsári. Samkvæmt þessu samsvarar 200 fein-nám 3,3 árum. Það er nokkuð nauðsynlegt að hafa það í huga að þetta er búið að gerast, það hefur átt sér stað. Það sem um er að ræða hvað varðar kjarasamninga er meðal annars það að við semjum um að hægt sé að láta þessa þróun ganga fram þannig að kjaraumhverfi kennara liðki hér fyrir þannig að þróun geti gengið óhindrað fram með góðum hætti.

Það er því með engum hætti hægt að halda því fram að búið sé að setja kjaraviðræður í erfiða stöðu vegna þess að verið sé að leggja til styttingu. Hitt er það að það er tækifæri fólgið í því að með því að samið verði þannig að sú þróun sem ég lýsti áðan og birtist meðal annars í námskránni frá 2011 og lögunum frá 2008, geti gengið fram með skipulegum og góðum hætti þarf að gera breytingar á kjörum kennara. Það væri þá líka leiðin til þess að hægt væri að hækka laun kennara umfram það sem gerist á almennum markaði, það væri hægt að gera það. Það er mjög mikilvægt og það er tækifæri sem við (Forseti hringir.) eigum ekki láta okkur úr greipum ganga.