staða framhaldsskólans.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér málefni framhaldsskólans í skugga verkfalls framhaldsskólakennara. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Guðbjarti Hannessyni, fyrir að taka upp þetta málefni og svör hæstv. menntamálaráðherra.
Framhaldsskólinn er í eðli sínu íhaldssamt en um leið kraftmikið starfsumhverfi þar sem breytingar í samfélaginu streyma stöðugt inn í skólann með nemendum sem eru drifkraftur umbreytinga og oftast fórnarlömb þeirra verkefna sem við erum að tala um hér. Vandinn í dag birtist ekki í aðalnámskránni, kennsluháttum eða hæfni kennara. Vissulega þurfum við að takast á við brottfall, það þurfum við ávallt að gera.
Vandinn er fyrst og fremst tvíþættur í mínum huga. Áður gátu kennarar treyst á yfirvinnu og því skorti oft á samstöðu til að ná fram bættum kjörum. Samfara auknum rekstrarvanda hins vegar, niðurskurði og hagræðingaraðgerðum blasir nakinn veruleikinn við, of lág grunnlaun og enga yfirvinnu að hafa.
Virðulegi forseti. Til að ná farsælli lausn vil ég taka undir með hæstv. menntamálaráðherra, að gera tilraun til að horfa á þetta í samhengi, þ.e. skipulagsbreytingar og kjör kennara. Hér þarf samvinnu og sátt stjórnvalda, skólastjórnenda og kennara og ég minni á þá staðreynd að það verður engin framþróun eða lausn nema fyrir tilstuðlan skólastjórnenda og kennara. Hér er tækifæri til þess að ná árangri ef horft er á þessa hlið mála, trúi ég.