staða framhaldsskólans.
Hæstv. forseti. Átt hefur sér stað vinna í framhaldsskólum á Íslandi í töluvert mörg ár sem miðað hefur að því að stytta námstíma til stúdentsprófs. Það er líka jafn ljóst að ekki hefur verið full eining um það. Hins vegar er kennarastéttin og hið opinbera sammála um að nauðsynlegt er að stokka upp það starf sem á sér stað í framhaldsskólum og færa það nær þeim þörfum sem okkar unga fólk sem við erum að mennta hefur og þarf sem undirbúning fyrir lífið.
Ég sat ráðstefnu fyrir nokkuð mörgum árum þar sem prófessor frá Bretlandi fór yfir skólakerfið í hinum vestræna heimi. Þar líkti hann skólakerfinu við seglskútu meðan allt samfélagið væri eins og vélskip. Það er líking sem ég hef gjarnan hugleitt og gripið til þegar ég hef verið að velta fyrir mér því sem gera þarf í framhaldsskólum.
Það þarf að eiga sér stað breyting en það er jafn ljóst að sveigjanleikinn sem rætt hefur verið um mun verða til staðar áfram. Hins vegar er miðað að því að meðalnámstími til stúdentsprófs verði styttur og það gerist af sjálfu sér hjá því unga fólki sem er í skólunum. Það tekur þá ákvörðun að hraða námi sínu vegna þess að það vill nýta tímann á annan hátt.