143. löggjafarþing — 77. fundur,  19. mars 2014.

staða framhaldsskólans.

[16:04]
Horfa

Jóhanna María Sigmundsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda. Ég er einn af þeim nemendum sem aldrei hafa passað í formið og fóru óhefðbundna leið, sem er kannski ástæðan fyrir því að ég og hv. þm. Óttarr Proppé erum saman á þingi í dag.

Ég hef stundað framhaldsskólanám í tveimur skólum og ég get sagt með vissu að fáir finna eins mikið fyrir því og nemendur hversu mikið álag er sett á framhaldsskólakennara. Þótt ótrúlegt sé eru komin nokkur ár síðan ég byrjaði í framhaldsskóla, um sjö. Jafnvel þá var álag á kennara orðið mikið. Ég starfaði mikið í félagsmálum í skóla og fékk því að starfa mikið með kennurum við skipulag og utanumhald og gáfu kennarar alveg einstaklega mikla vinnu utan vinnutíma síns til að tala við nemendur, hjálpa þeim við námið og aðstoða við margt sem komið getur upp í stórum skóla þegar félagslíf er annars vegar.

Að þessu sögðu set ég upp hatt nemandans í ræðu minni.

Í gegnum skóla og félagsstarf hefur oft verið rætt að endurskoða þurfi framhaldsskólalög með tilliti til einhvers sem upp hefur komið. Margt þarf að hafa að leiðarljósi við svona endurskoðun þar sem innan framhaldsskólakerfisins blandast bæði lögráða og ólögráða einstaklingar. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna gildir um um það bil helming þeirra sem stunda nám við framhaldsskóla og þarf að huga að því að allar breytingar taki mið af honum.

Í fyrrnefndum sáttmála kemur fram að barn hafi rétt til að tjá sig í málum sem það varða og að hlustað sé á skoðanir þess. Oft gleymist í ferli sem þessu að tala þarf við nemendur líka, fá sjónarmið þeirra fram því að oftar en ekki eru einhverjir vankantar á reglum sem ákveðnar hafa verið af fólki sem á að vita betur en nemendur, þrátt fyrir að tugir ára séu liðnir frá því að það var í námi og hefur því ekki þurft að hlíta slíkum reglum sem nemendur.

Um leið og við horfum á sjónarmið nemandans, samfélagsbreytingar o.fl. þurfum við að breyta hugarfarinu. Í dag er mest hugsað um kostnað. Ég veit ekki hversu oft ég hef verið mötuð á því hvað það kosti að mennta framhaldsskólanema og að þeir þurfi að standast þessar og hinar kröfur til að skólinn komi vel út og fái sitt, en kannski er komið að því að huga aðeins að kostnaði við laun þeirra sem vinna þá vinnu sem þarf til að hjálpa nemendum að (Forseti hringir.) standa sig. Ég trúi því að hæstv. menntamálaráðherra sé að leita allra mögulegra leiða til að mæta þessum vanda og að vinna hans í þessum málaflokki taki mið af upptöldum atriðum.