staða framhaldsskólans.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa umræðu. Ég tel að við getum verið sammála um að það er mjög mikilvægt að menntakerfi okkar sé að minnsta kosti jafn gott og menntakerfi annarra þjóða. Ástæðan er sú að lífskjör þjóða byggja í æ ríkari mæli á menntun. Ef menntakerfi okkar stenst ekki samanburð við menntakerfi annarra munu lífskjör okkar ekki heldur standast samanburð við lífskjör annarra. Þess vegna skiptir alþjóðlegur samanburður máli.
Það skiptir líka máli fyrir okkur að horfast í augu við þá staðreynd að einungis 44% af nemendum okkar klára framhaldsskólanámið á tilteknum tíma. Það er alvarleg staða og því þurfum við að breyta.
Ég er líka þeirrar skoðunar að sá lagarammi sem kominn er, sem settur var hér 2008, sé ágætur og því vel hægt að vinna innan hans. Það tel ég alveg ljóst. Þess vegna skiptir máli að kjarasamningar kennara séu þannig úr garði gerðir að sú þróun sem lagt er upp með þar geti gengið snurðulaust fyrir sig. Í því er fólgið tækifæri í þessum kjarasamningum, að í stað þess að verið sé að takast á um þær hækkanir sem urðu á almenna markaðnum sé á grundvelli slíkra breytinga í kjarasamningum, sem eru til þess fallnar að flýta fyrir og liðka fyrir þeim breytingum sem ég er að lýsa hér, hægt að bæta kjör kennara umfram það sem gerist á almenna markaðnum.
Ég leyfi mér að fullyrða að í því er fólgið sóknarfæri. Það er ekki vandi málsins að þessi staða sé uppi, það væri miklu erfiðara að fást við þessa kjarasamninga ef einungis væri sú staða uppi að hægt væri að tala um þær hækkanir sem urðu á almenna markaðnum. Það gefur augaleið.
Ég vona virkilega að það takist að leysa þessa deilu fljótt og örugglega. Samninganefndirnar sitja enn á samningafundum og ég veit að þar er unnið af mikilli alvöru. Menn leggja mikið á sig til að ná saman. Ég vona, og veit að ég tala fyrir hönd okkar allra, að það gangi hratt fyrir sig.