143. löggjafarþing — 77. fundur,  19. mars 2014.

almannaréttur og gjaldtaka á ferðamannastöðum.

[16:40]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegi forseti. Svo eru tvö atriði til viðbótar sem mér finnst mikilvægt að nefna í þessu samhengi, m.a. ráðstöfun þessara fjármuna sem við mundum ná í með þessum hætti. Það er ekki bara þörf á því að fá peninga til að girða af viðkvæm svæði og byggja upp göngustíga, það er ekki síður mikilvægt að fá alvörufjármuni í öryggismál eins og hálendisvaktina sem hefur verið starfrækt á ári hverju undanfarin ár á hálendinu og er mjög kostnaðarsöm og þarf meiri fjármuni með vaxandi ferðamannafjölda. Það kostar líka pening að kynna landið með þeim hætti að við dreifum ferðamönnum betur en nú er verið að gera þannig að við jöfnum álagið.

Svo vil ég segja um almannaréttinn að hann er fyrirbæri sem hefur þróast með Íslendingum frá landnámi og verður til þannig að það er nauðsynlegt að tryggja rétt manna til að fara um landið, fyrst fótgangandi í litlum hópum eða á hestbaki. Hann tryggir enn frjálsa för um landið og er mikilvægur en hann getur ekki farið út í að taka við endalausu magni af ferðamönnum til að fara um land. Hann er ekki óumbreytanlegur þó að hann sé mikilvægur.

Við þurfum að hafa í huga að hið sama gildir um eignarréttinn. Þess eru mýmörg dæmi að á hann hafi verið gengið með réttlætanlegum hætti og mál hafa farið alla leið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um að það væri réttlætanlegt í þágu almannahagsmuna að ganga á eignarréttinn.

Þannig þurfum við að ganga fram með tilliti til meðalhófs o.s.frv. en það er gríðarlega brýnt að við höfum hraðar hendur í þessum efnum.