143. löggjafarþing — 77. fundur,  19. mars 2014.

almannaréttur og gjaldtaka á ferðamannastöðum.

[16:44]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Fyrir nokkrum árum komu skoskir félagar mínir í heimsókn til mín. Þeir komu hingað til lands út af tölvuleik sem er framleiddur á Íslandi. Við ákváðum að fara með þá stuttan túr og eftir vinnu brunuðum við af stað til að sjá Gullfoss og Geysi, fórum Nesjavallaleið og rétt náðum Gullfossi áður en dimmdi. Við fórum að Strokki en þar var allt í niðamyrkri og ekkert að sjá. Við vorum samt spenntir að sjá hvernig þetta mundi líta út með flassi. Við læddumst upp eftir og náðum án þess að hafa heyrt Strokk gjósa og svo sögðum við öllum að vera tilbúin og taka mynd þegar þau heyrðu hljóðið. Það voru þvílík öskur og rosalæti, æðislega skemmtilegt, og þau eiga rosalega góðar minningar frá þessu.

Núna væntanlega kæmu þau að lokuðu búri. Engar minningar.

Nú er ég búinn að vera í námi í nokkur ár og ég hlakka rosalega mikið til þegar ég fer að keyra um Ísland og sýna syni mínum allt sem hann hefur ekki séð. Ég er ekki að fara að borga inn á Geysi til að sýna honum hann. Ég skal glaður borga fyrir dýra ísinn eða kaupa einhverja minjagripi, fínt að borga fyrir þjónustu o.s.frv., en ég ætla ekki að borga fyrir að fá að sjá tunglið eða Strokk. Mér finnst það alveg svipuð pæling. Einhverjir landflekar flæða um allt og búa til stórbrotna náttúru. Af hverju á ég að borga pening fyrir það sem gerist svona sjálfkrafa? Ég skil það ekki.