veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki á því hver ber þá ábyrgð á því að þessi veiðigjaldsnefnd hefur ekki komið saman það sem af er þessu kjörtímabili sem er væntanlega orðið einir níu mánuðir en látum það liggja milli hluta.
Við eigum annað samkomulag óuppfyllt sem er það samkomulag sem hér var gert í desembermánuði um þinglokin og laut einmitt að því að stjórnmálaflokkarnir settust saman yfir það með hvaða hætti mætti taka gjald af nýjum tegundum, svo sem makríl og öðrum þeim tegundum sem kynnu að koma nýjar inn í lögsöguna eða hefjast veiðar á sem ekki hefðu verið stundaðar áður. Minn skilningur var að það ætti að skipa um það sérstaka nefnd en nú heyrist mér á hæstv. ráðherra að hann ætli þessari nefnd að fara í það verkefni að leita leiða til gjaldtöku af nýjum tegundum. Ég geri ekki athugasemdir við það. Ef hann vill að þessi nefnd sinni þeim verkefnum getur hún verið ágætlega til þess fallin. Ég hefði samt haldið að slíkar tillögur hefði þurft að vinna miklu fyrr en í nefnd sem væri skipuð á þessum grunni einhvern tímann í apríl. Ég hélt að nýtt fiskveiðiár hæfist 1. september nk. og ef það ættu að koma einhverjar þverpólitískar sameiginlegar tillögur um gjaldtöku af nýjum tegundum hefðu þær þurft að koma inn á vorþingi. Framlagningarfrestur á málum rennur út annan mánudag þannig að þetta er að minnsta kosti mjög seint á ferðinni. Þó má út af fyrir sig segja að betra er seint en aldrei.