143. löggjafarþing — 77. fundur,  19. mars 2014.

veiðigjöld.

372. mál
[18:53]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil koma hingað upp og gera athugasemd við þetta mál, hvernig það kemur fram og hvernig það ber að. Í fyrsta lagi vil ég rifja upp að á fundi formanna flokkanna, þegar við vorum að semja um lúkningu þingstarfa fyrir jól, varð það að kröfu okkar í Samfylkingunni að sett yrði á fót þverpólitísk nefnd til að ræða möguleikann á að leggja á gjald á makríl, og það var auðvitað hugsað sem hluti af greiðasemi við ríkisstjórnarflokkana líka, að skapa með því tekjusvigrúm í ríkisrekstrinum. Við ræddum um þverpólitíska nefnd og af hálfu formanna stjórnarflokkanna kom fram hugmyndin um að fela þeirri tilteknu nefnd það verkefni.

Mér hefur ekki verið gert viðvart um að nefndin, eins og hún er nú skipuð, gæti ekki hafist handa um þetta verkefni án tafar. Mér þykir þess vegna mjög sérkennilegt að fá það fyrst núna í formi frumvarps seint og um síðir að breyta þurfi fyrirkomulagi nefndarinnar. Ég tel mjög skaðlegt að hafa misst þann tíma sem við hefðum þurft að hafa hér í byrjun árs. Það hefði verið einfalt að vekja athygli okkar í stjórnarandstöðunni á því að sú nefnd væri ekki í stakk búin til að takast á við þetta verkefni strax í byrjun og að þess vegna þyrfti með einhverjum öðrum hætti að koma fyrir þverpólitísku samstarfi um álagningu gjalds á makríl.

Ég tek undir með þeim þingmönnum sem hafa talað fyrr í andsvörum, að ég óttast um örlög málsins vegna þess að það er bara ekki tími til þess að koma með frumvarp um álagningu gjalds á makríl (Forseti hringir.) úr því sem komið er.