veiðigjöld.
Hæstv. forseti. Þetta litla frumvarp er eingöngu breyting á 5. gr. laganna um veiðigjöld, nr. 74/2012, um skipun samráðsnefndar um veiðigjöld. Eins og ég sagði í stuttu andsvari áðan er þetta hugmynd sem fæddist í vinnuhóp úr nefndinni um að búa til samráðsnefnd sem veiðigjaldsnefnd skyldi kalla til og hafa til samráðs um veiðigjöldin og alla þá miklu vinnu sem við vissum að þyrfti að vinna í framhaldi af setningu þessara laga. Þetta er flókið ferli. Það versta er, og ég hef áður sagt það, að það er alltaf verið að vinna með svo gömul uppgjörsgögn frá sjávarútvegsfyrirtækjum, allt að tveggja ára gömul eftir að þau eru komin til Hagstofunnar með alls konar vísunum í alls konar vísitölur til að reikna þetta út.
Ég verð að segja alveg eins og er að ég er frekar óánægður með sjálfan mig sem formann nefndarinnar og það að okkur skyldi ekki hafa tekist að setja lagagreinina þannig inn að það væri nefnd þingmanna úr öllum flokkum. Við hefðum ekki átt að tiltaka fimm. Þá voru fimm þingflokkar á Alþingi. Það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra segir, eftir síðustu kosningar var ómögulegt að vinna með þann samráðshóp vegna þess að þá var til dæmis þingflokkur Hreyfingarinnar ekki lengur til. Auðvitað hefði mátt gera þetta fyrr, þetta hefur öllum verið ljóst.
Hæstv. ráðherra svaraði mér örlítið um hvernig vinna veiðigjaldsnefndar hefði gengið. Upp komu hugmyndir í nefndinni um að bæta því við frumvarp um rækjukvótann að taka af hinar frjálsu veiðar og blanda þar inn niðurfellingu á veiðigjaldi á ákveðnum tegundum sem við vitum að bera ekki arð í dag. Ég er algjörlega sammála því sem hæstv. ráðherra sagði áðan, miðað við þá hugsun í lögunum að greitt verði nokkurs konar auðlindagjald af arðsemi verður afkoman í rækjuveiðum engin og þvert á móti í bullandi mínus eins og maður hefur séð gögn um. Lögum um veiðigjöld skal Alþingi breyta ef ráðherra telur einhverja tegund þannig komna að hún standi ekki undir sér og hamli því kannski að sótt sé í. Við getum nefnt kolmunna sem er mjög dýrt að sækja.
Breytingin sem gerð var við vinnu atvinnuveganefndar með frumvarpinu um veiðigjöld var sem sagt gerð á vegum nefndarinnar og frumvarpinu breytt þannig að það standist stjórnarskrá vegna þess að það getur enginn lagt á skatt eða tekið af nema Alþingi sjálft. Í frumvarpinu var það þá hugsað þannig að ráðherra gæti fellt niður gjöld. Því var sem sagt breytt vegna þess að stjórnarskráin mælir svo fyrir að enginn nema Alþingi geti gert það, hvorki lagt það á né tekið af.
Í lögunum er það þannig að veiðigjaldsnefnd skal gera tillögu til ráðherra ef hún telur þess þurfa og ráðherra komi með það til Alþingis. Efni andsvars míns áðan var að spyrja hvers vegna það væri ekki gert.
Nú kann vel að vera að störf veiðigjaldsnefndar séu ekki komin nægjanlega langt til að gera þessa tillögu til ráðherra og ráðherra komi svo með það hingað. Það tel ég miður og hefði talið hitt farsælla og algjörlega í anda laganna um veiðigjöld, eins og þar stendur og ég hef gert að umtalsefni. Þetta frumvarp er lagfæring á þessari yfirsjón okkar, sem ég vil nefna svo, að við nefndum ekki að það væri samráðsnefnd þingmanna úr öllum þingflokkum heldur þessi fimm manna nefnd eins og kom fram áðan. Því er breytt hér og ég vil trúa því að við í atvinnuveganefnd getum sammælst um að vinna þetta hratt og vel en við verðum auðvitað að gefa nefndinni tíma til að heyra álit og senda það út til umsagnar, geri ég ráð fyrir þó að þetta sé lítil breyting. Ef til vill verður niðurstaða nefndarinnar sú að gera það ekki og þá ætti að vera hægt að taka þetta beint í gegn.
Ég þekki ekki nógu vel til þess samkomulags sem var gert fyrir jól milli formanna flokkanna um að setja í gang nefndarvinnu gagnvart makríl. Að mínu mati hefði þessi samráðsnefnd ekkert endilega þurft að vinna það, það hefði mátt kjósa nýja fulltrúa eins og gert var ráð fyrir í samkomulaginu, en gott og vel, þessi leið var valin og þá held ég að það sé mikilvægt að flýta þessu sem mest í gegn.
Ég verð að lýsa vonbrigðum mínum með það svar hæstv. ráðherra við andsvari mínu áðan um veiðigjaldsnefnd að fulltrúar veiðigjaldsnefndar skuli ekki hafa treyst sér til að koma fyrir atvinnuveganefnd þó að það væri ekki nema til að segja okkur frá þeirri niðurstöðu sem þeir hafa komist að í dag þó að það sé ekki fullskapað verk. Við í nefndinni erum að vinna að tillögum um að fella niður veiðigjöld á ákveðnum tegundum.
Mér er kunnugt um að veiðigjaldsnefndin hafi fengið Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í lið með sér til að vinna þetta verk. Veiðigjaldsnefnd hlýtur að geta komið til nefndarinnar og sýnt okkur gögn sín og niðurstöður. Ég gerði rækjuna að umtalsefni og er sammála því að erfiðleikar í veiðum, lítill kvóti, dýrt að sækja, mjög hátt olíuverð, lágt afurðaverð sem þó hefur farið hækkandi, hafa gert það að verkum að þessar veiðar standa ekki undir sér nema ef til vill hjá þeim útgerðum sem stunda þannig útgerð að veiða rækju en fá eitthvað af öðrum fiski með sem þá bjargar túrnum fjárhagslega og gerir það að verkum að sjómennirnir hafi örlítið meiri laun.
En þetta á líka við um aðrar tegundir. Á sumarþinginu gerðist það við eitthvert mál sem kom til 3. umr. að þar átti að leggja fram breytingartillögu um að fella niður veiðigjald af kolmunna, að öllu leyti eða hluta, ég man ekki hvernig það var. Ég er alveg hiklaust þeirrar skoðunar að kolmunnaveiðar skili ekki þeim arði sem þarf en það er samt mikilvægt fyrir okkur að stunda þær veiðar og veiða það sem okkur er ætlað og við getum veitt með tilliti til þess þegar fram líða stundir og menn fara að rífast um það, líkt og með makrílinn, hver má veiða hvað, hvað kemur í hlut hverrar þjóðar.
Vegna þess að ég er farinn að ræða um veiðigjöld vil ég nefna að ég hef til dæmis spurt í nefndinni en ekki fengið viðhlítandi svör við þessari spurningu: Hvers vegna á að fella niður öll veiðigjöld af þorskveiðum í Barentshafi sem mér skilst á þeim sem þekkja til að beri meiri arð en kolmunnaveiðar? Í vinnu nefndarinnar hefur verið talað um að fella niður helminginn af veiðigjöldum af kolmunna en ekki öll. Svo má alveg í þessu sambandi segja að það er umhugsunarefni hvort við eigum að fella niður bæði almenna veiðigjaldið, sem greitt er af þorskígildum og hefur verið í langa tíð, og sérstaka veiðigjaldið. Mér finnst það mjög athyglisvert að innan greinarinnar eru aðilar sem hafa sagt í mín eyru að þeir telji að í þessum óarðbæru veiðum eigi fyrst og fremst að fella niður að öllu leyti eða að hluta hið sérstaka veiðigjald en að allir eigi að borga hið almenna veiðigjald sem við höfum hingað til útlistað þannig að ætti að vera tekjur fyrir ríkissjóð til að mæta þeim útgjöldum sem við öll höfum af ýmsum rannsóknum í sjávarútvegsmálum eins og rekstri Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu. Menn hafa líka nefnt Landhelgisgæsluna og fleiri stofnanir.
Þessi sjónarmið hef ég líka flutt í nefndinni en hvað varðar frekari framvindu veiðigjaldanna, sem eru til umræðu í nefndinni, finnst mér það svolítið standa og falla með því hvort við fáum nægilegar upplýsingar. Ég hlýt, virðulegi forseti, að nefna hér að ég tel að eina rétta leiðin með niðurfellingu eða afslátt á veiðigjöldum sé sú að veiðigjaldsnefnd leggi það til við ráðherra sem komi með það til Alþingis. Það er leiðin sem er skrifuð inn í lögin um veiðigjöld, það er sú leið sem Alþingi ákvað þegar þessi lög voru sett, að mig minnir 26. júní 2012. Þetta litla frumvarp er eingöngu tæknileg breyting á þeirri yfirsjón að menn hugsuðu ekki til næsta kjörtímabils og að það yrði breyting á þingflokkum, í raun hafa orðið til tveir nýir þingflokkar sem að sjálfsögðu eiga þá að eiga fulltrúa í samráðsnefndinni.
Ég ítreka þó enn einu sinni að ég tel að við þurfum að fara öðruvísi í það en segi jafnframt, sem ég hef áður sagt, að ég er sammála því að það þurfi að finna út veiðigjöld á hverja tegund fyrir sig. Svo getur það breyst frá einu ári til annars, einhver tegund gæti borið góð veiðigjöld og þá á að sjálfsögðu að gera það en ef eitthvað gerist, ef það verður miklu dýrara að sækja fiskinn eða kostnaðurinn er jafnvel meiri en tekjurnar, þarf Alþingi líka að vera tilbúið að breyta því. Andi laganna var sá að þetta skyldi virka í báðar áttir.