veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hún var að mörgu leyti fróðleg og lýsir svolítið vel því sem á undan er gengið. Þótt frumvarpið sem við ræðum hér sé lítilvægt í stóra samhenginu er það sem á undan er gengið afskaplega umfangsmikið og margt þar að læra. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hinar ýmsu lexíur í þeim efnum.
Hv. þingmaður nefndi varðandi þessa veiðigjaldsnefnd sem er í 4. gr. laganna nr. 74/2012 að honum þætti eðlilegt, eins og hæstv. sjávarútvegsráðherra sagði sjálfur, að nefndin hefði ekki komið saman þegar hæstv. sitjandi sjávarútvegsráðherra tók við því embætti þar sem þingflokkarnir höfðu breyst. Nú er Hreyfingin ekki til lengur sem þingflokkur, Píratar eru komnir inn o.s.frv. og lögin eru kannski ekki gerð til að taka mið af þeim breytingum, og þótt ég beri virðingu fyrir þeim orðum sem hv. þingmaður lét falla um það að kannski hefði kannski mátt huga aðeins betur að þessari tilteknu grein.
Það er nú búið og gert.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins meira út í það hvort sá skilningur minn sé réttur að nefndin hefði annaðhvort ekki getað komið saman snemma 2013, kannski í byrjun júní 2013, eða hvort það hefði verið gagnslaust eða óæskilegt eða óeðlilegt af einhverjum öðrum ástæðum. Ég spyr sérstaklega með hliðsjón af því að núna í sumar, sumarið 2013, voru allmiklar deilur um veiðigjöld. Nú þegar ég les þetta, og ég tók auðvitað þátt í þeirri umræðu sumarið 2013, velti ég fyrir mér hvort þessi nefnd hefði ekki átt að koma saman þá. Getur hv. þingmaður frætt mig eitthvað meira um hvað eðlilegt hefði verið að gera (Forseti hringir.) með hliðsjón af þessari nefnd á þeim tíma?