veiðigjöld.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Bjarkey Gunnarsdóttir spyr mig út í það sem ég tæpti á í stuttu andsvari, hvernig ég hefði talið best að leggja á veiðigjöld, hún spyr hvort það sé í anda virðisaukaskattslaga og þess kerfis. Það má eiginlega segja já við því, það er dálítið mikið í þá átt að þetta sé gert hvort sem menn vilja á tveggja mánaða tímabili eða þriggja eða fjögurra. Það er fer eftir því hvað er praktískast gagnvart skilum sjávarútvegsfyrirtækja á ýmsum gögnum til ríkisskattstjóra sem þá yrði falið að reikna það út, hvernig sem það verður gert, það má segja að það sé mjög í anda þess.
Mjög mikil andstaða er gegn veiðigjöldum og mismunur hjá þeim sem eru eingöngu með útgerð og landa afla í fiskverkun eða á markað og þeim sem eru með útgerð og fiskvinnslu, þar er mikill munur á, aðstöðumunur, vegna þess að virðisauki verður til í fiskvinnslunni, sem gerir að verkum að viðkomandi útgerð, sem er samtengd, á auðveldara með að borga veiðigjald en sú sem er eingöngu í útgerð.
Þá hef ég sagt, virðulegi forseti: Já, ég tel að hægt væri að koma því á, þ.e. að útgerðin greiði veiðigjöld af sinni veiði og selji til fiskvinnslunnar og fiskvinnslan fái að draga frá þegar greidd veiðigjöld sem útskatt í raun ef við notum tal úr virðisaukaskatti og greiðir þá eingöngu af þeim virðisauka sem verður í vinnslunni. Þannig er komið til móts við þessi sjónarmið. En ég tek það skýrt fram, virðulegi forseti, að sú leið sem ég vildi fara naut því miður ekki stuðnings og ekki voru margir sem voru tilbúnir að stökkva á þann vagn.