utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna, hún er æði mikilvæg.
Í stuttu máli: Já, einfalda svarið er já, ég óttast það, fullyrði reyndar að það sé þegar hafið. Við heyrum kannski ekki jafn mikið af því og við gætum, en það er þegar hafið og sérstaklega þegar það hefur varðað til dæmis kjarnorkuver í Bandaríkjunum og víðar hafa öryggismálin verið þannig að menn hafa þurft að taka tillit til þessa þáttar mjög lengi, miklu lengur en ógnin hefur verið til staðar í hinni almennu umræðu og hér á hinu háa Alþingi, þannig að ég tek einfaldlega undir þær áhyggjur.
Ég hef líka aðrar áhyggjur, Ég hef áhyggjur af því að öryggismál verði notuð hérlendis og meira í hinum vestræna heimi til að réttlæta takmarkanir á borgararéttindum, til þess að réttlæta takmarkanir á friðhelgi einkalífsins. Þegar kemur að því að takmarka réttindi borgaranna þá er þetta sú röksemdafærsla sem rekst oftast á, það er yfirleitt mesta móðursýkin í kringum þessa röksemdafærslu, það er þjóðaröryggið, þannig að þetta er tvíþætt sem við þurfum að huga að. Það þarf að huga að þessum þáttum vegna þess að þetta mun verða svona. Styrjaldir framtíðarinnar munu snúast um að skemma innviði samfélaga og þar erum við jafn berskjölduð og jafnvel berskjaldaðri en margar aðrar þjóðir. Það er ofboðslega mikilvægt að við tökum á því og ég fagna því að það starf sé hafið.
Samhliða því verðum við frá upphafi að átta okkur á því að við verðum að gera það í fullu samræmi við borgararéttindi. Við megum ekki gleyma því, við megum ekki skilja þau eftir. Við megum aldrei líta svo á að nú sé einhver nýr heimur sem geri að verkum að við þurfum að gleyma gömlum borgararéttindum. Þvert á móti, við þurfum sérstaklega að hafa þau í huga og þurfum sérstaklega að bera virðingu fyrir því að við ætlum að halda áfram með vestræn lýðræðissjónarmið inn í þennan nýja heim frekar en að gefa þau upp á bátinn til að geta tekist á við þjóðaröryggisvandamál.