143. löggjafarþing — 79. fundur,  24. mars 2014.

ráðning forstjóra LÍN.

[15:05]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vildi nota þetta tækifæri og spyrja hæstv. menntamálaráðherra út í nýlega ráðningu forstjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þær fréttir eru af því fluttar að ekki hafi verið ráðinn sá sem stjórn lánasjóðsins taldi vera hæfastan umsækjenda en þó umsækjandi sem stjórnin hafi talið hæfan. Fréttir eru einnig um að umsækjandinn sem talinn var hæfastur hafi sent ráðuneytinu erindi og beðið um rökstuðning fyrir ráðningunni og hafi fengið það svar frá ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytisins að engan rökstuðning væri að finna en til þess vísað að hæstv. ráðherra og hans pólitíski aðstoðarmaður hafi annast um viðtölin og tekið ákvörðunina. Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur. Auðvitað er það ekki bara pólitískur geðþótti sem ræður ráðningum í æðstu embætti ríkisins heldur eru það rökstuddar ákvarðanir.

Ég óska eftir því að hæstv. menntamálaráðherra geri grein fyrir því hvaða ástæður lágu að baki ráðningunni, hvernig hún er rökstudd og að það verði leiðrétt ef ranglega er með farið að ráðuneytið hafi ekki haft neinn efnislegan rökstuðning fram að færa fyrir ákvörðuninni.