ráðning forstjóra LÍN.
Virðulegi forseti. Mér er ljúft að leiðrétta þetta. Ég þykist vita hvaðan hv. þingmaður hefur þá hugmynd sem hér var lýst um að annars vegar væri um að ræða einhvers konar ákvörðunartöku af hálfu ráðuneytis og hins vegar af hálfu hæstv. ráðherra. Augljóslega hlýtur þetta alltaf að snúast um ákvörðunartöku hæstv. ráðherra í hverju tilviki.
Það sem hér er vísað til er frétt í DV þar sem vitnað er til bréfs þar sem sagt er frá því að ráðuneytið hafi tekið viðtöl og síðan hafi ráðherra tekið ákvörðun. Það sem um er að ræða er að viðtöl voru tekin af þeim sem hér stendur, ráðherranum í þessu tilviki, aðstoðarmönnum hans og ráðuneytisstjóra og yfirmanni fjármálaskrifstofu. Síðan var lagt mat á þau viðtöl ásamt auðvitað þeim upplýsingum sem höfðu komið frá stjórn lánasjóðsins þar sem þrír voru taldir hæfastir. Vissulega er hárrétt að stjórn lánasjóðsins mat einn þeirra hæfari en lagði til þrjú nöfn og síðan var það ákvörðun mín að velja einn af þeim þremur.
Ég ítreka að það er aldrei þannig að ráðuneytið hafi eina skoðun og ráðherra aðra. Svona var þetta unnið eftir bestu samvisku. Niðurstaðan var sú sem ég hef lýst. Þar vó þyngst í mínum huga stjórnsýslureynsla viðkomandi, þ.e. sú sem ráðin var hafði mikla reynslu innan stjórnsýslunnar og það var það sem mér fannst vega hvað þyngst í annars mjög góðum og hæfum hópi umsækjenda.