143. löggjafarþing — 79. fundur, 24. mars 2014.
ráðning forstjóra LÍN.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og fyrir þann stutta rökstuðning sem hann færði fyrir ákvörðun sinni hér. Ég vil bara inna ráðherrann eftir því og óska eftir því að hann staðfesti það hér að umsækjandinn, sem leitað hefur til ráðuneytisins um skriflegan efnislegan rökstuðning fyrir ákvörðun ráðherrans, fái slíkan efnislegan rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun sem tekin var.